Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Side 69
69
J>að er nú ekki tilg-angur ritgerðar þessarar að
skýra frá hinu mikla og marga, er gerðist á Hólum
allan þann tíma sem þar var biskupssetur, skóli og
prentverk, heldur er tilgangurinn einkum sá, að gefa
mönnum hugmynd um húsakynni og búskap fyr meir
á þessu merkilega höfuðbóli og hvernig þar að öðru
leyti hefir hagað til. Verður við samning ritgerðarinnar
mest farið eptir fornum úttektum, sem til eru í skjala-
safni biskupsins.
Eins og nærri má geta hafa ekki Hólar orðið allt
í einu að slíku höfuðbóli, sem þeir urðu síðar. J>etta
hefur orðið smátt og smátt eptir því, sem auður bisk-
upsstólsins jókst og fleira safnaðist þangað.
Kirkja sú, er Otti Hjaltason hafði gjöra látið,
brann til kaldra kola með öllu skrúði sínu og „leynd-
um dómi guðs“ og síðan hafði aptur verið hrófað upp
litilli og óvandaðri kirkju; ljet því Jón biskup
rífa þá kirkju, en efna til nýrrar kirkju og ferma skip
í Norvgi með við o. fl. en skip það tók land á Eyri
fyrir sunnan land, þar sem nú er kallað Eyrarbakki,
og þar var kirkjuviðurinn fluttur á land; fluttu Sunn-
lendingar viðinn Norður í Vinverjadali — líklega Kjal-
veg — en Norðlingar drógu hann síðan um vetur
heim að Hólum; þætti slíkt örðugur viðarflutningur nú
á tímum. Ljet Jón biskup síðan gjöra mikla og virðu-
lega kirkju á Hólum, og verður eigi annað sjeð, en að
sú kirkja hafi staðið fram á daga Jörundar biskups
J>orsteinssonar (1267—1,313). Hann ljet gjöra kirkju á
Hólum og kostaði miklu fje til. Sú kirkja hefur ver-
ið furðu mikið hús, eptir því, sem letrað finnst, 50 ál.
á lengd; kórinn 17 álna breiður, framkirkjan 19 álnir
á breidd, en i3álnir liðugar á hæð, en forkirkjan, eða
öðru nafni stöpullinn 18 ál. á lengd og breidd. fessi
kirkja stóð þangað til á dögum Pjeturs biskups danska
(1392—1402) og fjell til grunna niður 1394. Pjetur