Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Page 100
100
i. að sunnan í fyrri lest hlutfiskur
að vikt 50 vættir 2 fj.
2. að sunnan í seinni lest hlutfiskur 6 I -
3. landskuldafiskur af Skaga . . 46 — 5 -
4. landskuldafiskur úr Fljótum . . 123
5. landskuldafiskur úr Svarfaðardal i5 — 4 -
6. landskuldafiskur úr Sljettuhlíðar-
umboði 18 — 4 -
Samtals 259 vættir 6 fj.
í stað kaffis og öls, sem nú er brúkað, hefur á
á Hólum verið höfð mjólk og einkum sýra. Meginið
af matvörunum var aðflutt; smjör, ær og kýr guldust
meðal annars úr umboðunum á vorin; ærnar og kýrn-
ar voru mjaltaðar heima, eða þá á útibúunum í Hof-
staðaseli og á Flugumýri, um sumartímann; sk)Tr og
smjör og sýra flutt þaðan heim til Hóla, og ærnar og
kýrnar annaðhvort lagðar að velli um haustið eða
komið í fóður, því þess verður vart, að staðurinn átti
jafnan margt kvikfjenaðar í eldum hjer og þar fram
um sveitir. Fjármark staðarins var afeyrt bæði eyru.
Áðdrættirnir voru fjarska kostnaðarsamir og erfiðir.
Fiskur var mjög opt mestmegnis fluttur sunnan af
Suðurnesjum, þvi þar reru einkum vinnumenn staðar-
ins. Suður var þvi á hverju sumri farið í tvær lesta-
ferðir og stundum þrjár. Auk þess var næstum ár-
lega farin ein og stundum tvær lestaferðir vestur und-
ir Jökul, og þar að auk voru norðurlestir eða lestir
norður í Eyjafjarðar- og J>ingeyjarsýslur á hverju
sumri. Staðurinn átti eigi fleiri brúkunarhesta en með
þurfti til heimabrúkunar og heimflutnings úr seli og
af útibúum, og varð þvi jafnaðarlegast að taka leigu-
hesta i lestaferðirnar. Stundum voru 80 hestar teknir
til leigu í suðurferðirnar og er leigan eptir hvern
þeirra ójárnaðan til ferðarinnar stundum 60 sk., stund-
um 45 sk., og stundum enn minna; hestaleiga og út-