Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1983, Page 90

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1983, Page 90
Að Valshamri tíðkaðist að sitja yfir kúm á sumrum í ey nokkurri þar nærri, og voru þær reknar þangað eftir rifi, þegar lágsjávað var. „Eitt sumar sat drengur nokkur, innan fermingar, þar yfir nautunum. Einn dag sér hann sægráa kú koma saman við nautin, en eigi sá hann hvaðan hún kom. En það sá hann að hún átti þar hvergi heima í grenndinni. Hann undraðist þetta mjög og athugar kúna vel. Svo mjólkar hann hana í höfuðfat sitt, til þess að sanna sögu sína. Var hún mjög gæf. Síðan hleypur hann heim með mjólkina.“ Um kvöldið var kýrin horfin, en birtist þó aftur næsta og þarnæsta dag, en hvarf jafnan á kvöldin, eða þegar menn fóru til að vitja hennar. „Þá þóttust allir sjá að þetta hefði verið sækýr, enda var mjólk hennar miklu kostabetri en úr öðrum kúm.“. 11) „Sœnautin á Stað“ í Grunnavík. Frá Djúpi og Ströndum e. Jóhann Hjaltason, bls. 194. Þetta er gömul munnmælasaga um tilefni þess að Staðar- kirkja fékk vandaðan prédikunarstól með myndum af guð- spjallamönnum og prestinum sem gaf hann, en hann var enn við lýði um 1887. Átti presturinn að hafa lent í átökum við griðung einn mikinn, er gekk þar úr sjó, ásamt 10 sækúm, nótt hverja i gróandanum og beit tún hans. Varð klerki afls vant við tarfinn, og hét þá að gefa kirkjunni nýjan predik- unarstól, ef hann fengi yfirbugað hann, Urðu þá skjót umskipti í viður- eigninni, og drap klerkur bola. Var mörinn úr honum bræddur, og reyndust 18 fjórðungar. „Seldi prestur hann útlendum skipurum fyrir hátt verð, og varði því öllu til kaupa á stóli þeim, sem enn prýðir Staðarkirkju.“ En „hvað um kýrnar varð greinir sagan eigi.“ Önnur útgáfa af þessari sögu er í Vestfirskum sögnum Arngríms Bjarnasonar, 3. bindi, bls. 102-103, og nefnist þar „Álfabyggð við Grænavatn í Grunnavík“. Þar eru nautin, er gengu i tún prestsins, kennd álfum eða huldufólki. Náði prestur forustunautinu, með því að bita í eyra þess. Skömmu síðar lenti hann í átökum við eiganda nautsins, og fór halloka í fyrstu, en gat unnið hann með því að heita á Staðarkirkju, og gaf henni síðar dýrindis silfurstjaka. Nautið varð kynbótagripur. Hér er sýnilegt að sækúm og huldukúm er ruglað saman, enda er þess hvergi getið annars staðar, að sækýr hafi gengið til beitar á landi, eða að menn hafi lent í átökum við eigendur þeirra (sjá þó nr. 9). 92
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.