Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1983, Blaðsíða 134
Mjög erfitt er að fá viðunandi verð fyrir þann hluta gæranna sem
mislitur er.
Jóhannes fór nú í gegn um og ræddi vinnslurás mokkagæranna.
Drap hann m.a. á verðmæti þeirrar ullar, sem til fellur við klippinguna.
Að lokum ræddi Jóhannes nokkuð um verðlagningu á gærum og
kom þar fram að verð á svörtum og tvílitum gærum er verulega lægra
en á öðrum gærum. Einnig að verð á gærum af fullorðnu frá Búvöru-
deild SIS til verksmiðjanna var hærra en verð dilkagæra, sem er í
algjörri mótsögn við raunverulegt verðmæti.
í framhaldi af þessu sýndi Jóhannes svo hver væru helstu viðskipta-
lönd Islands varðandi gæruframleiðsluna. Finnar hafa keypt mikið af
hálfunnum gærum, en af fullunnum vörum hefur mest farið til Sví-
þjóðar. Einnig eru Sovétríkin að koma þar inn í allmiklum mæli á þessu
ári.
Einar E. Gíslason ræddi um áhrif sæðingastöðvahrútanna á gæru-
gæðin.
Jóhann Helgason og Ólafur Vagnsson beindu spurningum til Jó-
hannesar og bennti Ólafur á, að þótt reynt hafi verið að koma á
gæðamati á gærum á sláturhúsunum, þá hefði ekkert verið greitt eftir
því frá verksmiðjunum.
Egill Bjamason kom einnig með fyrirspurnir. Jóhannes Sigvaldason
svaraði þeim spurningum sem til hans hafði verið beint. M.a. kom fram
í máli hans, að sambandið á milli bænda og þeirra sem við iðnaðinn
vinna þyrfti að vera mun betra og meira en nú er. Nokkrum stuttum
spurningum var varpað til Jóhannesar meðan hann var í ræðustól og
svaraði hann þeim jafnóðum.
5. Skýrslur nefnda. Eftirfarandi skipun
án athugasemda.
Fjárhagsnefnd:
Haukur Steindórsson,
Jóhann Helgason,
Teitur Björnsson,
Sveinn Jónsson,
Sigurjón Tobíasson,
Jóhannes Torfason,
Sigurður Líndal,
Þórarinn Sólmundarson,
Guðmundur Steindórsson,
Björn Þórðarson,
Stefán Skaftason,
Þorsteinn Davíðsson.
nefnda fór fram og var samþykkt
A llsherjarnefnd:
Gísli Pálsson,
Aðalbjörn Benediktsson,
Heiðar Kristjánsson,
Jón Sigurðsson,
Jón Guðmundsson,
Jón Hlynur Sigurðsson,
Einar E. Gíslason,
Alfhildur Ólafsdóttir,
Stefán Halldórsson,
Ólafur G. Vagnsson,
Guðmundur Helgi Gunnarsson,
Ari Teitsson,
Sigurður Arnason,
Þórður Sigurjónsson,
Guðbjartur Guðmundsson.
136