Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1971, Síða 111

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1971, Síða 111
UM ÞJÓÐSKJALASAFN ÍSLANDS 111 19. öld hefur það verið meginregla í skjalavörzlu í söfnum að halda út af fyrir sig skjölum frá einstökum embættum eða stofnunum. Það er regla, sem á erlendum mál- um er kölluð proveniensprincip (af latnesku sögninni provenio ég geng fram, birtist, kem í ljós) eða stundum á dönsku hjemhprsprincippet. Við gætum kallað það upp- runareglu á íslenzku. Þá er takmarkið það að ganga eins vel frá hverju embættis- eða stofnunarsafni og gert mundi vera í góðu skrifstofuhaldi. Við embætti, þar sem haldin er bréfadagbók (journal) eða skjöl flokkuð á annan veg og bréfum raðað eftir þeim reglum, sem þar er ráð fyrir gert, þykir sjálfsagt að halda þeirri skipan, jafnvel þó að fyrirkomulag bréfadagbókar eða flokkunar sé breytilegt frá áratug til áratugar. Þó að dæmi séu þess í Þjóðskjalasafni, að bréfum sé ekki raðað eftir breytilegri til- högun bréfadagbókar sama embættis, heldur eftir yngsta fyrirkomulagi hennar og um leið því, sem fullkomnast þykir, verður þó að telja, að upprunareglan hafi verið mjög stranglega haldin hér á landi, aðallega eftir fyrirmyndum úr Ríkisskjalasafni Dana. Víðast hvar - og þar á meðal i Þjóðskjalasafni - eru þó gerðar tilslakanir á ströngustu upprunareglu, t. d. með því að halda sérstökum — en þó auðvitað innan hlutaðeigandi embættissafns - ýmsum skýrslum, sem endurtaka sig í sífellu, t. d. ársskýrslur eða mánaðarskýrslur, enda þótt bréfadagbók geri ráð fyrir, að skýrslunum sé raðað í innkomuröð með öðrum innkomnum bréftnn. En engum skjalaverði mundi þó detta í hug að raða saman skýrslum, sem tilheyra mismunandi embættum eða stofnunum, jafnvel þótt þær ættu efnislega saman. Það yrði vísasti vegurinn til þess, að allt lenti í óskiljanlegum hrærigraut, sem enginn hefði yfirsýn yfir. Nú er víða farið að raða skjölum eftir nákvæmu tugstafakerfi, sem byggist á efnis- flokkun, líkt og tíðkast um röðun bóka í bókasöfnum. En ekki hafa skjöl, sem raðað er eftir því kerfi, enn borizt Þjóðskjalasafni, og get ég því enga grein gert fyrir þeirri röðun. Röðunarreglur Þjóðskjalasafns er auðveldast að kynna sér með því að athuga skrár safnsins, einkum hinar yngri, svo sem skrárnar um biskupsskj alasafn og landlæknis- safn. Eldri hluti þessara safna er þannig varðveittur, að engin bréfadagbók er lil leið- beiningar um röðun innkominna bréfa. Hefur þá orðið að flokka þau eftir skynsamleg- um reglum og raða þeim í tímaröð innan hvers flokks, eins og sjá má á skránum. Sama er að segja um stiftamtmannssafn fram til 1803, þegar reglulegar bréfabækur hefjast. Á því safni hefur nú farið fram ný röðun, þó að skrá um hana hafi ekki enn verið prentuð. Embættið stendur frá 1684-1873. Ég skal hér í örstuttu máli víkja að röðun skjala þess frá upphafi til 1803, þegar regluleg bréfadagbók hefst. Frá árinu 1770 er stiftamtmaður nær alla tíð jafnframt amtmaður í suðuramti, cg hefur reynzt ókleift að halda sundurgreindum skjölum frá þessum tveim embættum eins og sama manns. Fyrst er raðað bréfabókum og þeim slitrum bréfadagbóka og bréfaskráa, sem til eru frá þessum tíma (þ. e. 1684-1803), og þarnæst svokölluðum stiftamtsbréfum, t. d. umburðarbréfum, sem send hafa verið út frá embættinu, en því borizt aftur. Þá er raðað innkomnum bréfmn. Fyrst eru nokkur bréf, sem eru eldri en stiftamtmanns- embættið, frá tímabilinu 1542-1682, tekin í arf frá hinu gamla höfuðsmannsembætti,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.