Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1971, Blaðsíða 122
122
MENNTUN BÓKAVARÐA
Námið er byggt upp svipað og aðrar B.A.-greinar, þannig að kostur er á prófum til
1., 2. og 3. stigs, er tengja má námi í annarri grein eða greinum til B. A. prófs. í fá-
einum greinum er síðan unnt að halda áfram námi til kandídatsprófs. En auk þess er
stúdentum heimilt að stunda bókasafnsfræði eina sér eða meðfram öðru námi, án
þess að gera próf í þeirri grein að þætti í lokaprófi, og hafa ýmsir haft þann hátt á,
einkum fyrstu árin, sem greinin var kennd.
Framan af var aðeins einn kennari í bókasafnsfræði og þá einungis kostur á námi
til 1. og 2. stigs, en nú hefur fyrir nokkrum árum verið tekið upp próf á 3. stigi einnig,
enda hefur kennurum smám saman verið fjölgað. Þeir voru sl. vetur fjórir, en fjölgar
væntanlega um a. m. k. einn í haust. Allir þessir kennarar hafa kennsluna að auka-
starfi, en í áætlun heimspekideildar um kennarafj ölgun er gert ráð fyrir, að ráðinn
verði lektor í bókasafnsfræði innan fimm ára.
I sumar höfum við, sem að bókavarðarkennslunni stöndum, lagt talsverða vinnu
í endurskoðun námsskrár og kennsluefnis í bókasafnsfræði með það fyrir augum að
gera kennsluna fjölþættari, ef unnt væri. Hefur verið ákveðið að fjölga kennslustund-
um nokkuð á öllum stigum. Mun ég nú gera í stórum dráttum grein fyrir námsefninu.
A 1. stigi er megináherzla lögð á flokkun og skráningu, og eru tvær kennslustundir
vikulega í hvorri grein. Nú í vetur er einnig ætlunin að taka upp kennslu í því, sem
við höfum kallað inngangsfræði um bókasöfn, tvær stundir í viku. Verður þar fjallað
almennt um tegundir safna, gildi þeirra og hlutverk, og kennslunni fylgt eftir með
heimsóknum í söfn. Þessi almenna kynning er m. a. til þess ætluð að hjálpa nemend-
um að finna áhugasvið sitt. Kennslustundir á 1. stigi verða þannig alls sex, en þar
við bætist skylduvinna í bókasöfnum, sem nokkur þóknun er greidd fyrir, allt að 200
stundir. Er ætlazt til, að nemendur sæki vinnu í tveimur - eða helzt fleiri - söfnum,
og eiga þeir að geta haft af þessu mikið gagn, en mjög hlýtur gagnsemin þó að
vera undir bókavörðtmum komin í hverju safni og skipulagningu vinnunnar.
A 2. stigi verða einnig 6 kennslustundir vikulega. Skiptast þær þannig, að tveimur
stundum er varið til skráningarkennslu, og er það í fyrsta sinn, sem skráning er kennd
á 2. stigi, en ástæða þótti til að auka kennsluna í þessari grein, svo mikilvægur þáttur
sem hún er í starfsemi hvers safns. Tveimur vikulegum stundum er varið til þess, sem
við höfum kallað bókfræði og upplýsingaþj ónustu. Þar verður aðaláherzla lögð á
kynningu á tegundum hókaskráa og hvernig beri að nota þær, svo og þjónustu við
safngesti. Loks eru á 2. stigi tvær vikulegar stundir í því, sem kallast bóksaga og
safnasaga, þar sem farið er yfir sögu íslenzkrar og erlendrar prentunar, bókaútgáfu
og bókagerðar. í safnasögu felst m. a. frásögn af helztu söfnum nálægra landa, skipu-
lagi safnakerfis þeirra og samvinnu safna. Vinnuskylda á 2. stigi er allt að 100 stundir.
A 3. stigi eru fjórar vikulegar kennslustundir, tvær í því, sem kallast safnategundir,
störf og stjórnsýsla, þar sem teknar verða fyrir hinar ýmsu safntegundir og þeim gerð
sem rækilegust skil, en tvær stundir vikulega er ætlunin að taka upp í því, sem við
höfum kallað handbókafræði, en á Norðurlöndum heitir „fagencyklopædi“. Teknar
verða fyrir einstakar fræðigreinar, rakin saga þeirra í stuttu máli og þróun hér á