Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1971, Page 151
UM FLOKKUN BÓKA 151
Með réttu hefur verið gagnrýnd röð flokkanna. Of langt er t. d. milli tungumála
400 og bókmennta 800, félagsfræði 300 og sagnfræði 900.
Hverjum flokki er síðan skipt í líu greinar. Dæmi:
600 Tækni. Framleiðsla. Iðnaður.
610 Læknisfræði.
620 Verkfræði.
630 Landbúnaður.
640 Heimili og húshald.
650 Viðskiptafræði. Rekstrarhagfræði.
Útgáfa.
660 Efnaiðnaður.
670 Iðnaður (ýmiss konar).
680 Handiðnir.
690 Byggingariðnaður.
Síðan kemur aftur skipting hvers einstaks tugs í tíu undirgreinar.
620 Verkfræði.
621 Vélfræði.
622 Námuverkfræði.
623 Herverkfræði.
624 Almenn byggingaverkfræði.
625 Vega- og gatnagerð.
[626]
627 Vatnamannvirki.
628 Leiðslur. Hreinlætisverkfræði.
629 Aðrar greinar verkfræði.
Sé hornklofi settur um marktölu, er það ábending um, að hún skuli ekki notuð.
Við sjáum, að í marktölunni 629 er gert ráð fyrir öðrum greinum verkfræði.
Síðasta marktala í grein er oft notuð tii þess að koma fyrir einhverju, sem áður er
óþekkt. Má t. d. benda á, að marktalan 629.1 stendur fyrir flugverkfræði, sem nú
er orðin mikilvæg í nútíma þjóðfélagi. - Á líkan hátt er kjarneðlisfræði ætlað rúm
aftast í eðlisfræðinni, 539, en hún er sú grein, sem kann að skipta sköpum fyrir
mannkynið í náinni framtíð. —
Hverju mikilvægu viðfangsefni má svo aftur skipta í tiu með aukastaf, sem er
afmarkaður með punkti. Dæmi:
Einn aukastafur:
621.1 Gufuvélar og beizlun gufuorku.
.2 Vatnsafl. Vatnsorkuvélar.
.3 Raffræði.
.4 Varmaaflfræði ogkjarnorku-
notkun. Hagnýting vind- og
sólarorku. Rafhitun.
.5 Kælitækni. Þrýstiloftstækni.
Lofttæming.
Tveir aukastafir:
621.31 Rafstöðvar og raforkuver.
.32 Rafljós. Ljóstækni.
35 Rafmagnsefnafræði.
.6 Dælur. Viftur. Blásarar.
.7 Verkstæði og verksmiðjur.
.8 Vélræn orkumiðlun og efnis-
flutningur.
.9 Tæki. Hér rennibekkir, sagir,
heflar, borvélar, skerpiáhöld og
önnur smíðaáhöld.
.37 Rafmagnsmælitæki.
.38 Rafeindatækni.