Skinfaxi - 01.12.1935, Blaðsíða 3
SKINFAXI
i
83
Þrastaskógur.
Gjafabréf Tryggva Gunnarssonar.
„Mér hefir þótt vænt um þá frétt, að Ung-mennafélögin vildu
leggja stund á skógrækt til þess, að reyna að bæta landinu
upp það, sem harðæri og hugsunarleysi landsbúa hafa liðnar
aldir afklætt landið.
Sú hugsun er fögur, að vilja klæða landið aftur, þótt ekki
sé meir en á smáblettum fyrst í stað, þeir blettir, þótt smáir
séu, geta verið öðrum til uppörfunar og eftirbreytni.
Þessa hugsun vil ég styðja, og hefi því keypt dálitla Iand-
spildu úr Ondverðarnestorfunni i Arnessýslu, sem ég með bréfi
þessu gef og afsala Ungmennafélagi íslands,
til fullrar eignar og afnota, með öllum þeim réttindum, sem
ég hefi eignazt nefnt Iandssvæði, sem er að stærð 140/2 vall-
ardagslátta, og álitið hentugt til skógræktar.
Eignarskjöl fylgja hér með, er sýna landainerki og stærð.
Óska ég svo hinum nýju eigendum til hamingju, að þeirn
með ástundun heppnist að klæða þcssa landspildu í grænt
skrúð, sér sjálfum til ánægju og öðrum (il fyrirmyndar.
Tlina afhentu landspildu má Ungmennafélagið ekki selja né
veðsetja. En skyldi mót von minni fara svo, að félagið upp-
hefjist eða þreytist á að rækta blettinn, áskil ég að hann
gangi til Landssjóðs íslands og verði hans eign til skógræktar.
Reykjavík, 18. október 1911.
Tryggvi Gunnarsson“.