Skinfaxi - 01.12.1935, Blaðsíða 67
SKINFAXl
147
4 eða 5 flokkar, sem lierjast um völd yfir líl'skjör-
um og menningu íslendinga, heldur Iveir meginað-
ilar liér, sem annarsstaðar í heiminum nú: Annars-
vegar au&vald og fasismi í ýmsum myndum, hins-
vegar alþýðan og hinn róitæki málstaður — æskan
og menningarþróunin. Öll frjálslynd og róttæk al-
þýðuæska á að leggjast á eitt og taka höndum sam-
an, livar sem er á landinu, um þessi * hugamál sín
og lífsskilyrði. Þau eru liennar sameign, livaða vinstri
flokks sem einstakingarnir kunna að telja sig til. Hún
getur unnið stórsigra í þágu lífskjara sinna og menn-
ingar, ef hún skilur samtakamátt sinn, hugsar málin
víðsýnt og raunsætt og lætur ekki erfiðleikana, sem
nú hjóða henni til fangbragða, kæfa hjá sér Irúna
á mátt sinn og megin, samtök sin og menningar-
möguleika.
Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér og
verðum afturhaldi og fasisma að hráð. Hér á íslenzk
alþýðuæska lif sitt að verja, drauma sína, ætlunarverlc
sitt, ákvörðun sína — framtíð þjóðar sinnar og sjálf-
stæði. Höfum við ekki eitthvað að verja, eitthvað
að berjast fyrir? Iiníga ekki rök öll og reynd að
því eina nauðsynlega, að öll róttæk og framsækin
alþýðuæska á Islandi stilli krafta sína til sameigin-
legra átaka í baráttunni fyrir hsðttum lífskjörum
sínum og menningarskilyrðum, sem um leið er bar-
áttan fyrir frjálsri þjóð í frjálsu landi, ræktaðri þjóð
í ræktuðu landi?
íslenzkt æskulýðssamband er enn ekkert til, sem
rúmi hin ýmsu framsæknu, frjálslyndu og róttæku
æskulýðsfélög. En þau eru aftur mörg og útbreidd.
Auk ungmennafélaganna má og nefna æskulýðsfélög
hinna vinstri stjórnmálaflokka þriggja, ýms íþrótta-
félög, málfundafélög, nemendasambönd alþýðuskól-
anna, bindindisfélög o. 11. Öll þessi félög hafa sam-
eiginlega á að skipa beztu kröftum íslenzks æsku-
10*