Skinfaxi - 01.12.1935, Blaðsíða 68
148
SKINFAXI
lýðs, búa yfir beztu hugsjónum hans, beztu og sigur-
vænlegustu ætlunum lians.
Þessi fólög öll liafa ýms alriði ólík á stefnuskrám
sínum, en þó er þeim öllum það sameiginlegt, að
vilja tengja orku og vilja æskulýðsins um vöxt, þroska
og þjóðnýtt starf á sviði atvinnu- og inenningarlífs.
Atriði þau, sem skilja, eru liverfandi andspænis þeim,
sem sameiginieg eru og sameina.
Hinar alvarlegu ástæður nú og enn ískyggilegri
framtíðarhorfur islenzkrar alþýðuæsku, kalla einum
rómi öll þessi frjálslyndu æskulýðsfélög til eins
draums, að einni ákvörðun, undir eilt merki: Frjáls
æska á Islandi, sem ver afkomu- og menningarmögu-
leika sína, eykur þá og eflir, gerist forystulið við
upphaf nýs tímabils í menningu þjóðar sinnar, eins
og ungu íslenzku námsmennirnir viti í Kaupmanna-
höfn gerðu fyrir 100 árum. Nú er miklu slærra hópi
á að skipa, miklu betri starfsskilyrði við að I)úa,
enda ennþá meira verlc að vinna. Nú geta ýms æsku-
lýðsfélög gengið til samstarfs, þá voru engin slík fé-
lög, aðeins fáir einstaklingar, sem hófust handa. Þeir
gáfu út Fjölni.
Við þurfum nð gefa út okkar Fjölni.
Við þurfum að taka höndum saman um útgáfu
æskulýðsmálgagns, sem tengir saman allan fram-
sækinn, frjálslyndan og róttælcan æskulýð, veitir lið
hvívetna liugsjónum hans, atvinnu- og menningar-
kröfum, ræðst gegn hverjum þeim félagsöflum, sem
beint eða óbeint vilja stemma stigu l'yrir marki og
málstað hans, ])jálfar hug æskunnar og eykur henni
rittækni, gerist málssvari og forvörður alls liins djarf-
asta og bezla og lífvænlegasta, sem íslenzk alþýðu-
æska hugsar, vill og framkvæmir á komandi árum.
Hér eiga hlut að máli liin ýmsu félög, sem áðan
voru talin, auk ýmsra fleiri, sem væntanlega gengju
til samvinnu, og ýmsra einstakra skoðanabræðra ófé-