Skinfaxi - 01.12.1935, Blaðsíða 58
138
SKINFAXl
Ungnr fullliugl.
Á síðastliðnu vori heimsótti
eg nokkur Ungmennafélög iá
Austurlandi, á vegum U.M.F.Í.
Á í'yrsta fundiuum, sem eg
hélt, en hann var i U. M. F.
Skrúð í Fáskrúðsfirði, kom fyr-
ir skemmtilegt atvik, sem eg
tel þess vert, að fara nokkrum
orðum um það. Á fundinum
flutti eg erindi um framtíðar-
starfsemi U. M. F. Því næst
voru rædd þau mál, sem félagið
gæti tekið til framkvæmda á næsta starfsári.
Við Idið mér sat 12 ára drengur, sviphreinn og hjart-
ur yfirlitum. Hann heitir Unnsteinn Stefánsson. Hann
talaði, blaðalaust, og hvatti ungmennafélagið til að
halda sundnámskeið á komandi sumri. Ræða hans var
flutt á sérstaklega góðu máli. Hann sýndi fram á nauð-
syn og ágæli sundiþróttarinnar, og að möguleikar væru
fy-rir hendi, ef ekki vantaði áhuga og samtök.
Þetta mætli þó nokkrum andmælum hjá formanni
félagsins, sökum ýmsra erfiðleika, sem hann kvað vera
á því, fjárskort og tímaleysi.
Unnsteinn talaði ]>á aftur og kvaðst hafa athugað
málið nákvæmlega og lagði fram kostnaðaráætlun.
Eflir tillögu minni var þá Unnsteini falið að sjá um
framkvæmd i þessu máli, án þess þó að það hefði
verulegan kostnað í för með sér fyrir félagið.
Nokkrum vikum síðar var fulltrúafundur U. M. F.
Auslfjarða haldinn að Stöðvarfirði. Þar mætti for-
maður U. M. F. Skrúðs. Tjáði hann mér, að námskeið
i sundi hefði verið haldið og borið góðan árangur; var
hann mjög ánægður yfir því. Æfiugar fóru fram í sjó