Skinfaxi - 01.12.1935, Blaðsíða 71
SKINFAXI
151
vakningu Fjölnisviljans, upphafs og eflingar liins
nýja sameiginlega blaðs íslenzkrar alþýðuæsku af öll-
um frjálslyndum floÍckum?
Reykjavík, á aldarafmæli Matthíasar Jochumssonar.
Eiríkur Mágnússon.
fþróttir.
Nýtt íþróttablað.
Síðan „íþróttablað“ í. S. í. hætti að koma út fyrir nokkr-
um árum, liefir tilfinnanlega skort málgagn fyrir íslenzka
íþróttamenn. En vegna
smæðar og ófullkomleiks
islenzkra Ijlaða, dreifbýlis
vors og örðugleika á að fá
hvatningar og tilsögn í
íþróttum, er þörfin meiri
hér en annarstaðar á sér-
stöku íþróttablaði. Slíkt
blað þarf að flytja fréttir
af öllu, sem markvert ger-
ist i íslenzkum íþróttum
og helztu íþróttaatburðum
erlendis. Það þarf að
skerpa áhuga æskumanna
á íþróttaæfingum og lík-
amsrækt, vekja metnað
þeirra, benda þeim á nýj-
ar leiðir og framkvæmdir,
og leiðbeina þeim við iðk-
anir þeirra. En útgáfa slíks
blaðs hefir jafnan reynzt
lítill gróðavegur.
Nú hefir ungur og áhugasamur íþróttamaður i Reykjavík,
Iíonráð Gíslason verzlunarmaður, ráðizt í að gefa út nýtt
íþróttablað. Verður það að stærð og frágangi svipað gamla
„íþróttablaðinu", og ráðgert, að það verði ekki síður fjölbreytt
og vandað að efni. Á það að koma út í sex tvöföldnm heft-