Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1935, Side 16

Skinfaxi - 01.12.1935, Side 16
96 SKTNFAXI hefir þó fyrst þroskazt á íslandi á síðustu sextíu ár- um. Skal hér nefndur brautryðjandi vor í þeirri mennt, Sveinbjörn tónskáld Sveinbjörnsson. Skemmti- legt er einnig að minnast þess, að margir prýðilega gáfaðir og skapandi tónsmiðir liafa fylgt honum spor. Söngmenn vorir, sem sungið iiafa frumsamin lög' islenzk fyrir erlendum áheyröndum, hera þvi einnig vitni, að lögin þau falli jafnan í frjóan jarð- veg hjá tilheyrendum, þyki ósjaldan hæði sérkenni- leg og fögur. Tónmennt vor er ung, en engu að sið- ur eigum vér þar langt frá ómerkilega arfleifð. Islenzk myndlist hefir einnig fyrst fengið byr und- ir vængi á síðasta mannsaldri. Þó hefir land vorl bor- ið gæfu til, að eignast í höggmyndalist einhvern hinn djúpsæasta og sérslæðasta snilling í þeirri grein á vorri öld — Einar .Tónsson. Frumleiki, liáfleygi og fegurð sameinast i meistraverkum hans. Sagt hefir verið með réttu, að verk hans væru „óður um bar- áttu og sigur liins góða“. í málaralist eigum vér og orðið marga menn gædda ríkri listgáfu, sem hlutgeng- ir myndu teljast meðal stærri þjóða. Menn eins og Ásgrímur Jónsson, Jón Stefánsson, Jóhannes Kjarval og Guðmundur Einarsson, að taldir séu nokkrir liin- ir kunnustu í listmálarahópnum, liafa að vísu þrosk- azt við erlend áhrif, en eru í innsla eðli sínu ramm- islenzkir, og liafa, í beztu verkúm sínum, hrugðið upp fögrum og stórfenglegum myndum af íslenzku landslagi og þjóðlífi. Ríkarður Jónsson, einn hinn sann-þjóðlegasti og fjölhæfasti listamanna vorra, hef- ir með frumleik sínum og hugmyndaauðlegð hafið islenzkan tréskurð i hærra veldi. Oss má vera það óblandið fagnaðarefni, að merkileg myndlist er áreið- anlega að skapast á íslandi; lnin er þegar orðin all- glæsilegur þáttur i menningarlegum arfi vorum. Hefi eg ])á dregið athyglina að hinu merkasta í íslenzkum erfðiun; og þó aðeins hafi stiklað verið

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.