Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1935, Page 19

Skinfaxi - 01.12.1935, Page 19
SIÍINFAXI 99 ist í víni eða öli. Þegar gerjun er lileypt í sykur- eða sterkjuefni, myndast vínandi og kolsýra. Það er í aðalalriðum þetta, sem gerist við ölbruggun og vín- framleiðslu. Nánara þori eg ekki að fara út í þessa sálma, þvi þá kynni einhver að segja, að ég væri að kenna íslenzkum börnum heimabrugg! Það er kunnugt, að áfengið lífgar og fjörgar. Og það er engin furða, þó feimnir menn og skapþungir freistist til að hýrga sig á víni, og verði sólgnir í það. Því miður veitist oft erfitt að fara gætilega með vínið, og menn verða ölvaðir. Áfengi, sem neytt er um of, tekur frá mönnum dómgreind, stilling og liátt- prýði. Siðprúðir og liæverskir menn umhverfast. — Þeir, sem óvanir eru áfengi, verða veikir, fá upp- sölu, böfuðverk, og lasleika eftir á, sem í daglegu tali kallast „timburmenn“. Langvarandi og óliófleg vínnautn veikir flest líffæri líkamans, og siðferði mannsins bíður hnekki. Taugakerfið veiklast, og kemur það m. a. fram í ankanalegu göngulagi margra drykkjumanna. Hjartað slappast og æðarnar kalka. Þegar verst gegnir, geta menn bókstaflega drukkið frá sér vitið, og allir vita um þau vandræði, sem drykkjumaðurinn leiðir yfir beimili sitt. Það eru ekki vandfundnar sögur um allt það böl, sem ofdrykkjan hefir i för með sér. Á hinn bóginn verður að líta á það, að í mörgum vínræktarlöndum, t. d. Frakklandi og Miðjarðarhafs- löndum er vin notað með mestu prúðmennsku. Allir heimilismenn neyta þar léttra vína um matmál, í stað þess að drekka vatn eða mjólk. Vitanlega verð- ur fólkið ekki drukkið af þeirri vínnautn. En þar sem engin vínrækt er, eins og t. d. á Norðurlöndum, litur út fyrir, að fólk eigi svo erfill með að hafa vín um hönd með hófsemi. Sumir eru svo æstir móti áfengi, að þeir geta tæp- lega viðurkennt neina kosti vínsins, en berjast gegn 7*

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.