Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1935, Side 35

Skinfaxi - 01.12.1935, Side 35
SKINFAXI 115 myndi vera, því að sólin skein glatt inn um litla bað- stofugluggann, sem sneri á móti auslri. Eg klæddi mig í snatri og slokaði í mig morgun- kaffið. Kristín gamla var óvenju ungleg í lireyfing- um. —• Ja, nú er blessaður þurrkurinn kominn, sagði bún og lífgandi bros færðist yfir gamla og hrukkótta andlitið. — Blessaður þurrkurinn. — Eg gekk út, tók bríf- una mína og byrjaði að snúa. Veðrið var óvenju fagurt; glaða sólskin og liægur andvari af vestri. Hvergi sást ský á himni. Það var bjart yfir jöklunum i austri, þar sem mjallhvítir tind- ar þeirra teygðust upp í ljósblátt himinlivolfið, og bin ótvíræða tign þeirra birtist i dag i undarlegri nálægð, eins og örlitið brot af þeim nýstárleika, sem ein- kenndi alla hluti á þessari morgunstund. Það var nýstárleiki þurrksins. Fyrir liandan þyrlaðist dökkgrár kolareykurinn upp frá strompi gistihússins, í hróplegu ósamræmi við grænan skóginn og blátt fljótið, sem streymdi og streymdi með sínum liljóða niði. Halldór gamli kepptist við að snúa. Hver lireyfing lians var áköf og sterldeg, en háttlaus og nokkuð flan- andi. — Þurrkurinn hafði gjörbreytt allri framkomu lians. Eftir nokkra stund kom Kristín gamla kjagandi með hrífuna sina. Hún liafði bundið hvítan skýluklút um böfuðið og teygt liann fram yfir enninu, því að göm- ul og sljó augu liennar, sem voru vönust eldliúsreyk, rökkri og grútartýruljósi, þoldu ekki ómengað sól- skinið í allri sinni dýrð. En svo að eg tali við ykkur í fullri breinskilni, þá gat eg tæpast varizt hlátri, þegar gamla konan fór að snúa: Hún slampaðist á- fram stórum skrefum, rótandi upp heyinu, með kipr- aða hvarma og stórar og vinnulúnarhendurnar kreppt- 8*

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.