Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1935, Page 43

Skinfaxi - 01.12.1935, Page 43
SKINFAXI 123 höfðu enga fyrirhöfn sparað, Iiugsað allt og undir- búið nákvæmlega og allt útlit var fyrir hezta ávöþt. En svo hrynja allar vonir í rúst á fáum dögum, eða jafnvel — stundum. Þegar aðrir en hændur reyna sjálfir eða lesa í blöðunum um þurrka, sem skræla gróðurinn, steypi- regn og vatnsflóð eða næturfrost í júní — hvað hugsa þeir þá og segja? Þegar hezt lætur eittlivað á þessa leið: „Aumingja bændurnir! Þeim er sannarlega vor- kennandi. Þeir hafa erfitt og vandasamt starf. Gott, að eg varð ekki hóndi, eins og eg var að hugsa um á tímabili.“ Eða kannske menn segi á þessa leið: „Það er ljóta óheppnin, að þessi rigning skyldi nú fara að koma, meðan eg hefi sumarfrí, og eyðileggja fyrir mér alla ánægjuna. Eins og eg hafði þó lilakk- að til að njóta sólskins og blíðu.“ En fyrir bóndann liafði þessi „ljóta óheppni" sum- arfrímannsins þær afleiðingar, að liann gat ekki létt á skuldabyrðinni, sem hann tók á sig, þegar hann keypti jörðina eða hyggði upp hæinn. Eða hún gerði honum ókleift að koma á langþráðum umbótum, auka bústofninn, kaupa vinnusparandi verkfæri og vélar, stækka túnið, kaupa tilhúinn áburð, eða livað það nú var, sem hann hafði dreymt um að geta gert, ef ekkert óhapp steðjaði að. Ekki nóg með það. Sjálft starf hóndans getur hæg- lega orðið þannig, að honum finnist það vera til- gangslaus og gagnslaus þrældómur. Ef tíðin er góð, miðar verki hóndans jafnt áfram. Þegar einu verkefni er lokið, þá er því lokið, næsta tekur við — koll af kolli! Starf fylgir slarfi, eftir föstum reglum. I óþurrkum og ótíð gengur þetta allt öðruvísi. Þá verður að vinna sama verkið upp aftur og aftur.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.