Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1935, Page 49

Skinfaxi - 01.12.1935, Page 49
SKINFAXI 129 bókfæra daglegan vinnutíma sinn og í'æra nákvæma reikninga. Hann á að meta vinnu sína t. d. á 25 aura klukkustund, ef hann er eldri en 15 ára, en 20 aura, ef liann er yngri. Allir reikningar verða að vera ná- kvæmir, til þess að tryggja það, að hinn lireini ágóði á reikningunum sé raunverulegur. Bóndanum ríður allra manna mest á að kunna þá vandasömu list, að gera nákvæmar áætlanir og rélta útreikninga. Hvaða gróður borgar sig bezt að rækta í þessum jarðvegi og hvern í hinum. Hvaða áburður gefur mestan arð, hvaða fóðurblöndun, o. s. l’rv., endalaust. — Arið 1928 tóku 2006 drengir og stúlkur þátt í fé- lagsstarfi því, sem Röckefellerstofnunin ber kostnað af. Samanlagt flatarmál ræktarlands þeirra var 724.615 m2, og uppskera þeirra var að verðmæti yf- ir 85.000 krónur. Utgjöld þeirra við ræktunina voru um 50.600 kr., en vel að merkja: þar eru reiknaðar með allar vinnustundir þeirra sjálfra. Auk kaupsins, sem þau hafa reiknað sjálfum sér fvrir vinnu, hafa því hreinar tekjur þeirra verið samtals yfir 34.400 kr. Þessar miklu hreinu tekjur voru ])ó ekki það, sem eftir var sótzt aðallega með starfseminni. Það var — eg endurtek það enn einu sinni — að vckja áhuga Iiinnar yngstu æsku á landbúnaði og jarðrækt, og virðingu hennar fyrir þeim atvinnuvegi. Starfsemi hinna eldri J. U. F.-félaga er engan veg- inn eingöngu fólgin í kappleikjum og slíku. Ilið milda ætlunarverk J. U. F. cr að sameina æskulýð sveit- anna til skipulegrar vinnu að gagnlegum málum, hver sem þau eru, — að reyna að eggja og auka starfslöngun og athafnaþrá æskunnar, sem einangr- un sveitanna dregur úr. Ryðjum hindrunum úr leið- inni, og framsóknarþrá og athafnaþörf æskunnar sjálfrar mun sjá fyrir því, sem á vantar. Fyrir þvi höfum vér fengið gleðilega reynslu. Deildir vorar liafa ráðizt með ákafa og krafti á mörg og misjöfn verk- 9

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.