Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1935, Page 63

Skinfaxi - 01.12.1935, Page 63
SKINFAXl 143 Hér grúfir heilög þögnin gfir gömlu leyndarmáli. Eg gróf þad hérna í mosann fyrir rúmum þremur árum. Og nótlin sá það aðeins, þegar neistinn uarð að háli. Og nóttin verður stundum svo heit og vot af tárum. Suo horfi ég á daggirnar hjúpa grænu stráin, og himinbláminn dofnar af logni og næturraka. En alltaf finnst mér kyrrðin minna á einhvern, sem er dáinn, — á eittlwað, sem er farið og kemur ei til baka. G u ð m u n d u r Daníelsso n frá Guttormshaga. Alþýðuæskan andspænis nýju verkefni. Nú eru 100 ár liðiu síðan ungum menntamönnum úti i Kaupmannahöfn, hitnaði svo um lijartaræktur, er þeir fundu ólgu hinna erlendu menningarstrauma, að þeir gálu ekki setið með einskæra embættisdrauma yfir námshókum sínum og kennurum. Þeir sáu þær sýnir og söfnuðu þeirri orku, að þeir liófu útgáfu timarits til fremdar og vaxtar sinni þjóð, sem ófrjáls var og menningarsnauð. Lítum dálítið persónulega á þetta fyrirtæki. Hvern- ig gátu nokkrir ungir og efnalitlir áliugamenn búizt við því, að þeir gætu nokkru um þokað hjá þjóð sinni? Eins og róðurinn hlaut líka að verða þungur, jafn langt sem þjóðin var aftur úr menningu sam- tíðarinnar! Ungir áhugamenn eru jafnan til, en stór- virkin láta biða eftir sér, finnst okkur. En stóru við-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.