Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1935, Page 64

Skinfaxi - 01.12.1935, Page 64
144 SKINFAXI burðirnir eru hversdagslegir, þegar nálægt þeini er staðið. Og skyldi ekki fáum liafa doltið í hug 1835, að nýr timi væri i aðsigi fyrir álirif frá þessu nýja riti ungu námsmannanna úti í Höfn, og live margir mættu fyrirtækinu með tortryggni? En þó hefir svo dómur fallið, að æskumennirnir fáu, sem tóku liönd- um saman 1835 til átaka þjóð sinni til sjálfstæðis og framfara, hafi unnið stórvirki, þótt lítið sýndist þeirra verk — ársrit, sem tórði fáein ár. — Þetta stór- virki leiddi af sér margt annað og víðtækara, þótl þeir, sem dirfðust að hefjast handa og trúa á áhrif starfs síns, féllu í valinn fljótt. Frá útgáfu rits þeirra reiknar þjóð þeirra nýtt timabil i sögu sinni. 100 ár eru liðin. 1935. Og nú er einmitt heðið eftir æskumönnum til svip- aðra átaka og þá. Enn á ný þarf rödd yngri kyn- slóðarinnar að skera sig úr, orka hennar að safnast saman og heinast að svi])uðu marki og þá. Þjóðin hefir að vísu stigið stórkostleg framfaraspor siðustu öld. En reynsla þeirra ára, sem nú eru að líða, hend- ir til þess, að óvanalegir erfiðleikar standi fyrir dyr- um, sem erfitt muni að yfirbuga, nema eldmóður æskulýðsins vinni ný og enn öflugri Fjölnisverk en áður. Alþýðuæskan finnur og til þess, en hún liefir ekki enn horið fyllilega sainan ráð sin og ákveðið aðgerðir sínar. Sárast allra finnur hún til þrengsl- anna nú. Hún er það viðkvæmust og á mest i húfi: hina óráðnu framtíð og hina óreyndu og óþjálfuðu hæfileika. Engir finna meir til ]>ess en æskumenn- irnir, ef lífsmöguleikarnir eru eyðilagðir. Alþýðu- æskan clskar ekki stöðnun né afturför. Hennar er lífsþorstinn, liennar er vaxtarþörfin, hennar eru starfsdraumarnir og hennar er uppreisnarhugurinn —- öllum öðrum fremur —, ef hallað er liennar sér- staka lífsrétti, og afturhald og kúgun steðja að.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.