Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1935, Síða 66

Skinfaxi - 01.12.1935, Síða 66
146 SKINFAXI ing þessarar hugsjónar. Æslcan þarf fyrsí og fremst að rækta sjálfa sig. Þar gefur hún þjóð sinni dýrasta gjöfina og heilladrýgsta. En þá þarf alþýðuæskan um- fram allt að hindra sérhverja beina og óbeina skerð- ing á lífsmöguleikum sínum og menningarskilyrðum. Og eins og drepið var á, er hér svo augljós liætta á ferðum og svo þröngt um vik, að ekki verður um deilt. Framtíð íslenzkrar alþý&uæsku er ieflt í tví- sýnu nú af þeim þjóðfélagsöflum, sem samkvæmt eðli sínu og stéttarafstöðu í þjóðlífinu lxljóta jafnan að vera fjandsamleg æsku og vexti, ræktun og róttækni. Og ungmennafélagshregfingunni her skylda til að gera íslenzkri alþýðuæsku þetta tjóst og kenna henni að beina samtakamætti sínum gegn þessari hættu. Alþýðuæskan liefir sín sérstöku áhugamál að verja og berjast fyrir, og sem hún liefir tengt óskir sinar og hugsjónir við. Og það er skylda ungmennafélags- hreyfingarinnar við þann æskulýð, að skýra fyrir honum þau áhugamál jafnan í ljósi nýrra tíma og hreyttra ástæðna. Ungmennafélagshreyfingin er Iivorttveggja í senn frjálslynd Iireyfing og þjóðleg í þessa orðs beztu merkingu. Félögin eru starfandi í flestum sveitum og kaupstöðum. Þau eru fjölmennasti og útbreidd- asti æskulýðsfélagsskapur á Islandi. Þau ei'U sem stendur megin-félagsstyrkur íslenzkrar alþýðuæsku og eiga þvi að ná til allrar þeirrar æsku og kalla hana til haráttu fyrir sínum eigin málstað: Aukn- um atvinnuskilyrðum, auknum menningarskilyrðum. Allar þær mörgu ákvarðanir, sem áhrif hafa beint eða óbeint á lífskjör okkar, — jafnvel daglega, — eiga rætur sinar á liinum pólitíska vettvangi. Þessi nxál alþýðuæskunnar verða aldrei sótt og unnin full- konxlega, nenxa á þeim vettvangi. En þar þarf engan veginn að vera um einlita flokkspólitík að ræða frá hálfu alþýðuæskunnar. Raunverulega eru það ekki

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.