Náttúrufræðingurinn - 1998, Síða 21
Grunnvatnið
I Straumsvík
FREYSTEINN SIGURÐSSON
Gríðarmikil fjöruvötn falla til Straums-
víkur, vestan við álverið og norðan við
Keflavíkurveginn. Mikið ber á fjöru-
vötnum þessum á lágfiri því sjávarföll
eru mikil þarna innst í Faxaflóa, eða allt
að 4-5 m munur flóðs og fjöru. Hraun
eru við víkurbotninn, með rásum og
röstum, og eru fjöruvötnin í stœrstu
rásunum ár að vexti, upp í nokkra m3/s á
stórstraumsútfalli. Svo lek eru hraunin
að fjöruvötnin falla sum sem gerðarlegir
lœkir í polla bak við hraunkamba og
hraunrastir, en útrennsli sést ekki úrpoll-
unum því vatnið rennur skemmstu leið í
gegnum hriplek hraunin. Af þessum
vatnagangi hefur staðurinn fengið nafn-
ið Straumur og víkin Straumsvík.
unnan við þjóðveginn standa
nokkrar tjarnir uppi í hraununum
og gætir sjávarfalla í þeim, svo
_________ verulegan mun sér flóðs og fjöru.
Syðst í tjörnum þessum er Gvendarbrunnur
úti í tjörn, hlaðinn í hring úr grjóti, og
göngugarður út að honum því brunnurinn
fer á kaf þegar sjávarfallaflóð eru mikil. Þarna
í Straumsvík er líklega næstmesta útrennsli á
Freysteinn Sigurðsson (f. 1941) lauk Diplomprófi
í jarðfræði frá Háskólanum í Kiel í Þýskalandi árið
1974. Fresyteinn hefur starfað hjá Orkustofnun æ
síðan, einkum við grunnvatnsrannsóknir, neyslu-
vatnsrannsóknir og jarðfræðikortagerð. Hann
hefur verið formaður Hins íslenska náttúrufræði-
félags frá 1990.
Náttúrufræðingurinn 67 (3-4), bls. 179-188, 1998.
einum stað úr grunnvatni til sjávar á
landinu, á eftir Lóni í Kelduhverfi.
Þetta mikla útrennsli er afleiðing af jarð-
fræðilegum og vatnafræðilegum aðstæðum,
eins og lög gera ráð fyrir. Menn kunna nokk-
ur deili á þeim aðstæðum því þónokkrar
rannsóknir hafa verið gerðar á grunnvatns-
fari á aðrennslissvæði Straumsvíkur og að-
liggjandi svæðum. Um almenna jarðfræði
vísast til annarrar greinar í þessu hefti
(Haukur Jóhannesson & Sigmundur Einars-
son). Grunnvatnsfar á og umhverfis stæði
ál versins var rannsakað árið 1966 í tengslum
við jarðfræðikönnun þess (Haukur Tómas-
son og Jens Tómasson 1966). Allvíðtæk
könnun var gerð á grunnvatni á vatnasviði
Straumsvíkur 1975 (Freysteinn Sigurðsson
1976), og var það raunar einhver fyrsta
meiriháttar könnun af slíkum toga sem gerð
var hérlendis og þar sem beitt var jarðfræði,
jarðeðlisfræði, vatnafræði og efnafræði í
samþættri rannsókn. Niðurstöður hennar
eru enn uppistaðan í þekkingu okkar á
grunnvatnsfari svæðisins. Svæðið vestan
Straumsvíkur, aðrennslissvæði Vatnsleysu-
víkur, var á sínum tíma kannað nokkuð
vegna fiskeldisáforma (Orkustofnun og
Vatnaskil 1986). Grunnvatnslíkan hefur
verið gert af höfuðborgarsvæðinu (Verk-
fræðistofan Vatnaskil 1991), en nú er í undir-
búningi að endurskoða það og bæta í ljósi
bættra aðferða og aukinnar þekkingar.
Vatnafarskort í mælikvarða 1:25.000 hafa
verið gerð af stórum hluta vatnasviðsins á
179