Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 58
1. mynd. Ljósmyndir voru notaðar við talningar á dýrum og mat á þekju þörunga á
klapparbotni í Straumsvík. Myndavélin situr á 50x50 sentimetra ramma, sem afmarkar
talningareit. A myndinni, sem tekin var á 9 metra dýpi, má sjá nokkrar stórvaxnar lífverur
sem stundum setja svip sinn á klapparbotn við Island. Rauð-gulleitu kúlurnar eru
eplamöttlar ("Halocynthia pyriformis) en á myndinni eru einnig nokkur fölgul eintök
náhandar (Alcyonium digitatumj. Náhöndin er sambýli fjölmargra sepa. Dýr sem er við
ramma nálœgt dýptarmœli hefur sepana inndregna, en dýrin fyrir miðbik myndarinar hafa
sepana úti. - Photographs were used to calculate numbers of animals and the cover ofthe
algae on the subtidal rocky bottoms in Straumsvík cove. The camera rests on a 50x50 cm
frame, delimiting the quadrats. In the photograph, taken at 9 meters, one can see some
large species, which may characterize rocky bottoms in Iceland. The yellow-reddish bulb-
slutped animals are the tunicate Halocynthia pyriformis. Also visible are several specimens
of the dull orange coelenterate Alcyonium digitatum, often referred to as Dead man’sfin-
gers. The animal close to the depth meter has withdrawn its polyps, while other specimens
have their polyps extended. Ljósm./photo: Líjfrœðistofnun Háskólans/Institute of Biology.
flöt með 100 punkta í 10 línum og þekja
einstakra þörungategunda og þekja botn-
fastra lífvera (hveldýr, aða, mosadýr o.fl.)
metin út frá þeim fjölda sem snerti hvern
punkt, auk þess sem hreyfanlegar lífverur,
svo sem sniglar, krabbar, o.fl., voru taldar.
A klapparbotni er einnig að finna fjölda
smávaxinna lífvera. Þær halda sig gjarnan
inni á milli greina þörunga eða sitja í gjótum
og holum í botninum. Agæt leið til að ná
svona dýrum er að safna þöngulhausum
eða festum þarans og tína úr þöngulhaus-
unum fjölbreytilegt lífríki.
Kafari safnaði þöngulhausunum, yfirleitt
á sömu stöðum (þó á 4,5 og 7 m dýpi 300 m
frá kerbrotagryfju), og Ijósmyndir voru teknar.
A hverri stöð voru teknir þrír þöngulhausar og
þeir settir aðskildir í söfnunarpoka. Á rann-
sóknastofu voru þöngulhausarnir vegnir og
ummál þeirra metið. Lífverur voru síðan
tíndar úr þeim, greindar og taldar.
Sem mælikvarði á fjölbreytileika var
216