Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 78
'c3
c
c
o
H
70
1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996
1. mynd. Áætl-
un Hollustu-
vemdar ríkis-
ins um þróun í
iosun kolflúor-
s a m b a n d a
1988-1996.
Útstreymi brennisteinsdíoxíðs er í réttu
hlutfalli við gæði og notkun hráefna á
hverjum tíma. Útblástur þess virðist ekki
hafa aukist í hlutfalli við framleiðslu, og má
þakka það betra hráefni á síðari árum.
■ VÖKTUN FLÚORS FRÁ
ÁLVERINU í STRAUMSVÍK
í kjölfar samninganna sem gerðir voru milli
ríkisstjórnar Islands og stjórnar Alusuisse,
vegna byggingar álversins í Straumsvík, var
ákveðið að stofna svokallaða flúornefnd 7.
júlí 1967 (Flúornefnd, 1971). Hún skyldi
annast vöktun flúoríðmengunar frá ál-
verinu, en flúoríð hefur, eins og áður var
nefnt, verið talið hættulegasti mengunar-
valdurinn við álframleiðslu. Flúornefndin
var sérfræðinganefnd, skipuð fulltrúum frá
Alusuisse annars vegar og fulltrúum til-
nefndum af ríkisstjórninni hins vegar.
Meðal þeirra voru norskir ráðgjafar sem
kunnugir voru áliðnaði þar í landi.
Flúornefndin ákvað að gera úttekt á
flúoríðmengun á svæði umhverfis Straums-
vík áður en álverið tæki til starfa. Svæðið
nær um Hafnarfjörð, Álftanes, Heiðmörk og
allt til Reykjavíkur, en einnig suður og
vestur fyrir Straumsvík. Einnig voru valdir
staðir í Borgarfirði til samanburðar. Ákveðið
var að greina flúoríð á túnum og í beitar-
gróðri, m.a. með tilliti til búfjár, en einnig var
rannsakað lauf og barr af trjám. Sýni skyldu
tekin sameiginlega af fulltrúum beggja aðila í
nefndinni, þeim skipt og þau efnagreind á
vegum beggja. Rannsóknarstofnum iðnað-
arins, síðar Iðntæknistofnun Islands, tók að
sér að taka sýni og greina þau fyrir íslenska
aðilann, en rannsóknarstofa Alusuisse fyrir
ISAL. Kostnaðar var greiddur af báðum.
Fyrstu sýni voru tekin sumarið 1968. Gróður
á sýnatökustöðunum hefur verið vaktaður
síðan með sýnatökum vor og haust. Seinna
var lögð aukin áhersla á barrtré, einkum í
Ijósi þess hve viðkvæm þau eru fyrir
flúoríðmengun þar eð blöð (barr) þeirra eru
fjölær og geta því safnað í sig meira flúoríði
en einær blöð.
Einnig voru rannsökuð bein úr kindum, jarð-
vegur, vatn úr vatnsbólum og stöðuvatni,
úrkoma og loft. Fljótlega var hætt að taka sýni
úr jarðvegi og lofti og seinna einnig
úrkomusýni. Frá upphafi var lögð áhersla á að
sýni væru alltaf tekin á sama stað, með sama
hætti, og allar rannsóknir gerðar á sem líkastan
hátt til að samanburður milli ára yrði sem
bestur. Þó hefurefnagreiningaraðferðum verið
breytt með nýrri tækni.
Flúornefndin var lögð niður með sam-
komulagi 1992 og hafði þá starfað í 25 ár, eða
frá árinu 1967. Tók þá Hollustuvernd ríkisins
við eftirliti með vöktuninni og hefur annast
það síðan. Síðustu starfsár flúornefndar-
innar annaðist lðntæknistofnun ein efna-
236