Náttúrufræðingurinn - 1998, Síða 73
fer það í gegnum síu sem er síðasta skrefið í
hreinsuninni. Steypan tekur um 90 mín. og
steyptir eru 2-7 barrar í einu, allt að 8 m
langir. Steypuvélin er mjög flókinn búnaður
og er öllum aðgerðum hennar stjórnað með
tölvu. Sem dæmi má nefna að stýra þarf
steypuhraða, vatnsmagni til kælingar, hita-
stigi í ofni, flæði ofan í hvert mót o.s.frv.
Meðan á steypu stendur eru tekin tvenns
konar sýni, annars vegar til að geta gefið
viðskiptavini nákvæma efnagreiningu og
liins vegar til að skoða magn óhreininda í
börrunum.
■SÖGUN OG
FRAMLEIÐSLUEFTI RLIT
Eftir að steypu lýkur eru barrar skoðaðir og
athugað hvort þeir standist kröfur við-
skiptavinarins að ytri gerð. Síðan fara þeir í
stærstu sög landsins og eru sagaðir, vigt-
aðir og merktir.
Framleiðslueftirlit yfirfer öll sýni og gögn
um steypuna og gefur út útilutningsheimild
ef allt er eins og á að vera; annars er steypan
dæmd í úrgang og fer þá í blandofn til
bræðslu. Barrar sem standast prófið eru
fluttir niður að Straumsvíkurhöfn og bíða
þar næsta skips. Siglt er vikulega til Imming-
ham í Englandi og Rotterdam í Hollandi.
Þaðan eru barrarnir fluttir með lest eða
flutningabflum til viðkomandi verksmiðja.
■ GÆÐA- OG
UMHVERFISSTJÓRNUN
Kröfur um gæði barra hafa aukist mjög á
undanförnum árum þar eð inikil þróun hefur
átt sér stað í völsunarverksmiðjunum. Al-
pappír verður sífellt þynnri; algengt er að
þykktin sé um 6 |im (6 þúsundustu úr
millímetra). Það gefur augaleið að ekki þarf
stóra ögn eða óhreinindi til að gera gat á svo
þunnan pappír.
Þessar iniklu kröfur kaupenda til gæða
álsins gera það að verkum að öflug
gæðastjórnun og strangt gæðaeftirlit er
nauðsynlegt. Gæðastjórnun hjá ISAL
beinist ekki aðeins að framleiðslunni sjálfri
heldur að öllu verklagi innan fyrirtækisins,
allt frá pöntun til afhendingar. Markmiðið er
að varan sé eins og viðskiptavinurinn vill
hafa hana.
Haustið 1992 fékk ISAL fyrst vottun um
að gæðakerfið stæðist hinn alþjóðlega
staðal ISO 9002, og hefur það síðan verið
staðfest í þrígang með reglubundinni
skoðun erlendra úttektaraðila.
í mars 1997 fékk ISAL einnig vottun um
að umhverfisstjórnunarkerfi fyrirtækisins
stæðist alþjóðlega staðalinn ISO 14001, og
er það í fyrsta skipti sem fyrirtæki hér á landi
hlýtur slíka vottun. Þetta þýðir að ISAL
uppfyllir þær reglur sem gilda á íslandi um
mengunarvarnir og hefur stöðugt eftirlit
með að svo sé. Mælibúnaður hefur hlotið
viðurkenningu óháðra aðila og fyrirtækinu
er skylt að leita stöðugt leiða til að draga úr
mengun í framtíðinni.
■ HEIMILDIR og ítarefni
Abel Engh, T. 1992. Pri nciples of metal refining.
Oxford University Press. 473 s.
Altenpohl, D. 1982. Aluminium viewed from
within. Aluminium Verlag, Dusseldorf. 223 s.
Anonymus 1986. Skanaluminium. Solidification
Characteristics of aluminium alloys. Universi-
tetsforlaget AS. 156 s.
Hufnagel, W. 1988. Aluminium Taschenbuch.
Aluminium Verlag, Dusseldorf. 1094 s.
Lossack E. 1995. StranggieBen. DGM In-
formationsgesellschaft mbH. 267 s.
Ýmsir höfundar 1992. Álbókin. Iðntæknistofn-
un Islands. 125 s.
■ SUMMARY
The Cast house process
The Cast house is one of two production depart-
ments of the Icelandic Aluminiunt Co. Ltd. Here
liquid aluminium front the potrooms, is used as
raw material for many different products. The
main product is rolling ingots which are sold to
rolling ntills in the UK, Germany and Switzer-
land. The Cast house produces 38 different sizes
of ingots and 56 different chemical composi-
tions.
231