Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 93

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 93
tíðinni hvort bættur hreinsibúnaður leiði til þess að horfinn gróður nemi aftur land í hraunununt næst álverinu. Þess eru ekki farin að sjást merki enn, þótt fimm sumur séu liðin síðan hreinsibúnaður varð fullvirkur, árið 1992. Telja verður líklegt að það muni taka mjög langan tíma fyrir mosa og fléttur að nema þar land aftur. Óvíst er hvort til þess kemur við núverandi aðstæður. Þótt veruleg ból hafi verið ráðin á útstreymi flúors frá álverinu fer enn verulegt magn frá því út í andrúmsloftið. Burtséð frá því gæti útstreymi brennisteinsdíoxíðs nægt til að hindra landnám þessa gróðurs, enda eru fléttur mjög viðkvæmar fyrir SO, í lofti, ekki síður en flúor. En rétt er að láta framtíðina skera úr um þetta. ÁLYKTANIR SEM NÝTA MÁ VIÐ FRAMHALDS- RANNSÓKNIR Sú reynsla sem fengist hefur undanfarna áratugi við gróðurathuganir og mælingar við álverið í Straumsvík er afar dýrmæt nú þegar fyrirhugað er að reisa fleiri álver á fslandi í næstu framtíð. Þessi reynsla var ekki fyrir hendi hérlendis þegar álverið í Straumsvík var reist. Því komu þær mælingar sem í upphafi voru gerðar til að fylgjast með gróðurbreytingum í nágrenni þess að mjög takmörkuðum notum sem samanburður við síðari breytingar sem gróðurinn varð fyrir. Helstu atriði sem taka þarf tillit til eru þessi: 1. Skemmdir koma helst fram þar sem undirlag gróðursins rís upp fyrir umhverfið, t.d. á klettum, dröngum, hæðunt eða á trjám, en síður á flatlendi. 2. Skemmdir koma helst frarn á þeirri hlið kletta, hæða eða trjáa sem veit að uppruna- stað loftmengunarinnar og er áveðurs fyrir vinda þaðan. 3. Skemmdir koma mest fram í stefnu ríkjandi vindáttarfrá verinu. 4. Skemmdir koma helst fram á mosum og fléttum, þ.e. gróðri sent tekur vatn og nær- ingarefni úr loftinu en ekki jarðveginum og safnar upp mengunarefnum ár frá ári, en ekki á suntargrænu grasi og blómjurtum sem fella lauf og stöngla árlega. 5. Einstakar tegundir mosa, fléttna og blómplantna svara áhrifum loftmengunar á mjög mismunandi vegu. Það er því tilgangs- lítið að taka til samanburðar mælingar á „grasi“, „mosum“ eða „fléttum“ ef ekki er fullljóst að um sambærilegar tegundir sé að ræða. Mikilvægt er að taka tillit til þátta 1-3 þegar valin er staðsetning fastra athugunar- reita til að fylgjast með gróðuráhrifum til framtíðar. Einnig er nauðsynlegt að beina sérstakri athygli að mælingum á þeim gróðursamfélögunt þar sem mosar og fléttur eru veruleg uppistaða í gróðri. Að öðrum kosti mælast ekki þær breytingar sem raunverulega verða á gróðrinum. Þar sem álver eru umlukin grasi vöxnu flatlendi og grænum ökrum er síst að vænta sýnilegra skemmda á gróðri. ÞAKKIR Ég vil þakka Einari Guðmundssyni hjá ISAL fyrir greinargóðar upplýsingar um hreinsi- búnað og útblástur frá álverinu í Straums- vík. HEIMILDIR Anon. 1971. Skýrsla flúormarkanefndar sumarið 1971. Rannsóknaráð ríkisins. 80 bls. Baddeley, M.S., Ferry, B.W. & Finegan E.J. 1971. Sulphur Dioxide and Respiration in Lichens. í: Ferry, B.W., Baddeley, M.S. & Hawksworth, D.L. (ritstj.), Air Pollution and Lichens. The Alhlone Press of the University of London. Bls. 299-313. Bjöm Lárus Örvar 1987. Útbreiðsla flélla og tegundafjölbreytni í nábýli við álverið í Straumsvík. Rilgerð við Líffræðiskor Háskóla Islands. Gilbert, O.L. 1971. The effect of airbome fluorides on lichens. Lichenologist 5.26-32. Gilbert, O.L. 1973. The Effect of Airborne Fluo- rides. í: Ferry, B.W., Baddeley, M.S. & Hawksworth, D.L. (ritstj.), Air Pollution and Lichens. The Athlone Press of the University of London. Bls. 176-191. Gilbert, O.L. 1975. Effects of air pollution on land- 251
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.