Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 97
Lífríki í tjörnum
VIð Straumsvík
AGNAR INGÓLFSSON
/ hraunbollum við Straumsvík og
næsta nágrenni eru nokkrar tjarnir
og eru þessar helstar: Brunntjörn,
tvœr ónefndar tjarnir suður af
Straumsvík og Lón við Lónakot.
að sem umfram allt einkennir
tjarnirnar við Straumsvík og
nágrenni er sérkennilegt samspil
fersks vatns og sjávar. Mikið
ferskt vatn rennur um hraunið til sjávar, þar
sem það sprettur víða fram í fjörunni. Sjór á
aftur á móti greiðan aðgang inn í hið gljúpa
hraun. Þessi jarðsjór liggur að mestu undir
ferska vatninu, þar eð sjórinn er eðlisþyngri.
Jarðsjórinn hnígur og fellur í takt við
sjávarföll í sjónum, og ferska vatnið sem
flýtur ofaná lækkar þá og hækkar einnig. í
tjörnum þessum gætir því sjávarfalla þótt
ekki sé beinn samgangur ofanjarðar milli
þeirra og sjávar. Þar sem svo háttar til við
tjarnir að skil jarðsjávar og fersks vatns eru
skörp og liggja svo djúpt að þau ná aldrei
upp í botn þeirra, er vatn tjarnanna alveg
Agnar Ingólfsson (f. 1937) lauk B.S.-prófi í dýra-
fræði frá Aberdeen-háskóla 1961 og doktorspr'ófi
í fuglavistfræði frá University of Michigan 1967.
Hann starfaði sfðan sem lektor við University of
Massachusetts í 3 ár, en varð dósent í dýrafræði
við Háskóla íslands 1971 og prófessor í vistfræði
1973. Fyrstu árin eftir heimkomuna vann Agnar
aðallega við rannsóknir á máfum, en síðustu rúma
tvo áratugi hefur aðalviðfangsefni hans verið
vistfræði strandsvæða.
ferskt þótt yfirborð þeirra hnígi og rísi í takt
við sjávarföll. Þar sem skilin eru ekki mjög
skörp (þ.e. þar sem sjór og ferskt vatn
blandast að nokkru) eða þar sem þau liggja
ekki mjög djúpt getur einhver sjávarselta
læðst upp í tjarnirnar þannig að þær verði
ísaltar.
Brunntjörn er suðvestur af Straumi, fast
norðan við Keflavíkurveginn (vegurinn
hefur raunar verið lagður yfir syðsta hluta
tjarnarinnar). Þessari tjöm var fyrir nokkrum
áratugum gefið nafnið Urtartjörn, þar sem
hún virtist nafnlaus, og hefur hún gengið
undir því nafni meðal nokkurs hóps manna.
Nafnið var dregið af því að fuglaskoðarar
veittu því eftirtekt að urtendur héldu sig oft
á tjörninni að vetrarlagi. Nú hefur hins vegar
komið í ljós að gamalt nafn var til, Brunn-
tjörn, og er sjálfsagt að nota það. Vatnið í
Brunntjörn er alveg ferskt, en sjávarfalla
gætir verulega íhenni (1. og 2. mynd).
Tvær ónefndar tjarnir eru beint suður af
Straumsvík, rétt sunnan við gamla Kefla-
víkurveginn. Vatnið í þessum tjörnum
virðist alveg ferskt og það staðfesta leiðni-
mælingar, sem nýlega hafa verið gerðar í
annarri þeirra (Jóhannes Sturlaugsson o.fl.
1998, nefnd tjörn við Gerði). Sjávarföll eru
töluverð. Nokkrir minni pollar eru umhverfis
meginljarnirnar tvær, en þeir hafa ekkert
verið kannaðir.
Tvær megintjarnir, ntjög vogskornar, og
nokkrar minni ntynda Lón við Lónakot.
Vatnið í þeim er ísalt og sjávarföll nokkur.
Náttúrufræðingurinn 67 (3-4), bls. 255-262, 1998.
255