Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1897, Qupperneq 47
41
Einföldust og ósamsettust er stærðfræðin; efni hennar
er einungis tölur og rúm. E>egar hreyfingunni er bætt við,
framkemur samsettari vísindagrein: aflafræðin, sem aptur
er skilyrði fyrir stjörnufræðinni, sem byggð er á þekkingu
þyngdarlögmálsins (gravitation). En þyngdarlögmálið er
sambandsliðurinn millum þekkingar vorrar á jörðinni og
alheiminum. Þá fylgir eðlilega þekkingin á öflum hinnar
líflausu náttúru, sem eðlisfræðin rannsakar, og skyldieiki
eða samdráttur (afflnitet) frumefnanna, sem efnafræðiu er
byggð á. Efnafræðin er sambandsliðurinn milli þekking-
arinnar á hinum líflausu efnum og hinum lifandi. íhinni
lifandi náttúru eru eðlislegu og efnislegu lögmálin sam-
tengd lífinu, og þessi nýi eiginleiki er rannsóknarefni líf-
fræðinnar. Stuart Mill o. fl. hafa bætt hjer inn í röð þá,
er Comte setti, þekkingunni á hinum andlegu fyrirburðum,
er birtast í hinni lifandi náttúru, sjerstaklega i manninum,
nefnil. sálarfræðinni, og er raunar ekkert athugavert við
það. En þó má ekki gleyma þvi, að meðan skilningur vor
og þekking eru ekki þroskaðri en þau enn eru, þá hlýtur
sálarfræðin að vera samtvinnuð liffræðinni, og væri því
rjettara að nefna hana hinn andlega hluta eðlisfræðinnar
(psykofysik). — Á eptir líffræðinni kemur svo loks hinn
síðasti liður í vísindakerfi Comtes, þekkingin á hinum fje-
lagslegu fyrirburðum, er leiðir í Ijós sjerstök og ný ein-
kenni, hin fjelagslegu eða andlegu (psýkisku) aðdráttaröfl,
er knýja manninn — og raunar alla hina lifandi náttúru—
til samfjelags og samverknaðar. — Þetta er fjelagsfræðin.
Comte velur henni hið efsta sæti í vísindakerfinu, af því
efni hennar er margbreyttast, svo margbreytt, að allar
hinar aðrar vísindagreinir verða að þjóna henni; einkum
er líffræðin nauðsynlegur fyrirrennari hennar, annars yrði
hún ekki byggð á reynslulegum grundvelli. — Comte hugð-
ist sjálfur að leysa það visindalcga þrekvirki af höndum
að byggja fullkomna fjelagsfræði, en honum auðnaðist ekki
að afkasta meiru en að undirbúa þetta mikla verk; timinn
var ekki kominn, og verkefnið ekki allt við hendina, eða