Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1897, Page 55
49
hann hefði enga sjálfstæða þýðingu, af því hann ekki sjálf-
ur grefur upp og beggur til hvern stein í byggingu sína,
nje heldur fellir trjen eða steypir járnið. Það er fjelags-
fræðinni engin niðrun, að hún krefst af þeim, er leggja
stund á hana, margbreyttrar þekkingar á öllum hinum
helztu vísindagreinum, er leggja til efni það, sem hún er
byggð af.
Nítjánda öldin hefur verið pólitisk öld; þingbundið
stjórnarskipulag hefur útrýmt einveldi fyrri alda. Það,
sem áður gjörðist í ieyndarráðum einvaldanna, fer nú fram
opinberlega fyrir allra augum, og euginn hikar sjer við
að fella opinberlega dóma um stjórnarfarið, svo almenn-
ingur getur haft glöggt yfirlit yíirþað. Þetta ásamt ítar-
arlegum og margbreyttum hagskýrslum um öll hlutföll
mannlífsins hefur fengið mönnum í hendur það ógrynni af
verkefni, að manni liggur við að sundla. Nítjánda öldin
hefur en fremur verið öld þjóðernisins, eða þjóðernanna,
gagnvart átjándu öldinni með sínum kosmópólitisku hug-
sjónum. Þessi dýrkun þjóðernanna hefur orðið til þess,
að allar Evrópu þjóðir hafa lagt innilega rækt við hin
þjóðlegu fræði sín um lifnaðarhætti, trú, hjátrú, alþýðu-
skáldskap og íþróttir. Og loks hefur nítjánda öldin ölluin
öldum fremur verið öld uppgötvana, rannsóknar og upp-
finninga. Fornleifarannsóknir og fornfræði hafa strjálað
björtu Ijósi yfir margt það í ævisögu mannkynsins, er áð-
ur var með öllu hulið. Óteljandi ferðalangar og glúskrar-
ar hafa leitað í hverjum krók og kirna, ekki einungis í
Norðurálfunni heldur í öllum álfum jarðarinnar og þeir
hafa safnað óþrjótandi efni til fræðslu um líf og háttu
þjóðanna á öllum öldum og öllum þroskastigum. Allt þetta
mikla verkefni notar fjelagsfræðin, því ekkert mannlegt
er henni óviðkomandi.
Þegar vjer nú lítum yfir það, sem að frarnan ersagt,
sjáum vjer, að það er eðlilegt, sem í upphafi þessa máls
var tekið fram, að fullkomin fjelagsfræði gat ekki orðið
til fyrri en á hinum síðustu mannsöldrum. Fyrst varð
Tímrit kanpfjelagauna. II. 1897. 4