Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2001, Page 7

Andvari - 01.01.2001, Page 7
Frá ritstjóra Lýðrœði og hnattvœðing Á síðustu misserum hefur nokkuð verið rætt um lýðræðið og birtingarform þess. Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, lagði sitt til þeirrar umræðu þegar hann tók við embætti í annað sinn 1. ágúst 2000. Forsetinn sagði þar meðal annars: Sú stjómskipan sem aðeins veitir almenningi aðgang að ákvörðunum með kosning- um á nokkurra ára fresti og bindur formlega ráðgjöf við stofnanir flokka og faglegra samtaka er í reynd aðeins rammi frá liðinni tíð. Við eigum núna möguleika á endur- reisn hins raunvirka lýðræðis, veruleika þar sem fólkið sjálft fer með valdið. Hinn gamli rammi villir þó áfram mörgum sýn sem telja að forystan hljóti jafnan að vera í fárra höndum. Það var hressileg nýbreytni að forseti lýðveldisins skyldi ræða grundvallar- atriði stjómskipunar með slíkum hætti. Viðbrögðin við ræðu hans voru raun- ar með ýmsum hætti. Nokkrir alþingismenn, þar á meðal Halldór Blöndal þingforseti, tóku orð Ólafs Ragnars Grímssonar óstinnt upp og töldu þau óvirðingu við þingið. Slíkt er fjarri sanni; það er virðing við þingið fremur en hitt að fjalla með málefnalegum hætti um grundvallarmál fulltrúalýðræðisins og veikleika stjómmálaflokkanna sem mynda farveg þess, en að því efni vék forsetinn líka. Slíka umræðu á einmitt að efla. Það fer vel á að forseti lýðveldisins, kosinn beinni persónulegri kosningu af þjóðinni en ekki sem fulltrúi flokks eða hagsmunasamtaka, láti þar til sín taka. í ræðu Ólafs Ragnars var margt íhugunarvert og annað sem orkar tvímæl- is, eins og ofurtrú á möguleika tækninnar sem þar kemur fram og forsetinn á sameiginlega mörgum nú á tímum. En sú afstaða sem ýmsir þingmenn eru gjamir að viðra, að forseta íslands beri að gæta þess að láta aldrei í ljós skoð- un sem um megi deila, er ólýðræðisleg og í raun óvirðing bæði við forsetann og þjóðina. Forsetinn situr ekki í skjóli þingmeirihluta og því ekkert við því að segja þótt hann setji fram skoðanir sem fleiri eða færri þingmenn eru ósamþykkir, - forseti og þing eru jafnréttháir þjóðkjömir aðilar. Um innsetn- ingarræðu forsetans er annars ekki ætlunin að fjalla hér frekar, en geta má þess að Birgir Hermannsson stjómmálafræðingur leggur út af henni í athygl- isverðri grein sem nefnist „Nýtt lýðræði?“ í vorhefti Skírnis 2001.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.