Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2001, Page 11

Andvari - 01.01.2001, Page 11
ANDVARI FRÁ RITSTJÓRA 9 eða svo og kjósi að nota aðferðir sem rúmast ekki innan þess fyrirkomulags til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Magnús Arni segir: „Það er útlit fyrir að stjómmála- og embættismenn þeir sem hafa komist til áhrifa í gegn- um það kerfi sem vestrænt lýðræði hefur grundvallast á njóti æ minna trausts. Ef fram fer sem horfir er líklegt að fulltrúalýðræðið þurfi að takast á við ein- hvers konar alræðis- eða stjómleysisöfl í æ ríkara mæli. Svo virðist því miður sem það hafi þegar valið vopn sín: táragas, lögreglukylfur og byssur.“ Höfundur pistilsins ber að vonum kvíðboga fyrir þessari framvindu, en hann er sannfærður um að valdsmennimir í Genúa hafi verið að gera það eina rétta, leita lausna á nákvæmlega þeim vandamálum sem mótmælendur hafa áhyggjur af: gróðurhúsaáhrifunum, „neikvæðum“ (hann hefur það orð innan gæsalappa) afleiðingum hnattvæðingar, kjamorkukapphlaupinu, skuldum þróunarlanda. Hagfræðingar, stjómmálamenn og fjölmiðlar keppist við að segja að mótmælendumir hafi í raun rangt fyrir sér. Hvers vegna láta þá ungmennin svona? Svar Magnúsar Ama er athyglis- vert: „Ungum Vesturlandabúum leiðist. Þeir finna ekki lífsfyllingu í æ ofbeldisfyllri bíómyndum og tölvuleikjum, í æ grófara klámi, harðari vímu- efnum, hraðskreiðari bílum, stærri húsum og sólarlandaferðum. Hinn guð- lausi, raunsæi heimur endalausra efnahags- og tækniframfara nær ekki að snerta neina strengi í brjóstum þeirra lengur.“ Og svo flettir hann upp í góðri bók og finnur þessi orð í öðrum kapítula Prédikarans: „Og allt það sem augu mín gimtust, það lét ég eftir þeim ... En er ég leit á öll verk mín, þau er hend- ur mínar höfðu unnið, og á þá fyrirhöfn er ég hafði haft fyrir að gjöra þau, þá sá ég að allt var hégómi og eftirsókn eftir vindi, og að enginn ávinningur er til undir sólinni.“ Þessi fomu orð kunna að lýsa hugarheimi hinna oföldu og lífsþreyttu bama Vesturlanda, en ég efast um að sú tilfinning hafi verið efst í huga andófs- manna. Því ungt fólk hefur réttlætiskennd, því ofbýður hið hróplega misrétti sem blasir við í heimi þar sem hinir ríku sálast úr ofáti meðan milljónir deyja úr hungri. Til hvers er viðleitni til að móta mannúðleg samfélög í slíkum heimi? Magnús Ámi sér blikur á lofti: „Ef einhver hugmyndafræði eða hreyf- ing nær inn í hugi þeirra sem nú sameinast einungis um andófið má búast við því að vestrænt lýðræðis- og auðvaldsskipulag þurfi að berjast fyrir lífi sínu. Ef stjómmála- og embættismenn geta ekki talað saman öðruvísi en innan víggirtra múra er illa komið fyrir því kerfi sem ól þá .... Lýðræðið verður að finna sér leiðir til að innblása borgarana á ný. Það verður að finna sér háleit markmið sem mönnum finnst þess virði að verja. Annars er það auðvelt skot- mark fólks sem telur það einungis „rotnandi hræ“ eins og Mussolini orðaði það á sínum tíma.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.