Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2001, Page 92

Andvari - 01.01.2001, Page 92
90 AÐALGEIR KRISTJÁNSSON ANDVARI Það væri misskilningur hjá Gísla að líta svo á að prófessorsstaða í norræn- um fræðum væri laus. Hér væri einungis um þá stöðu að ræða sem Wimmer hreppti þegar Konráð lét af störfum. Heimspekideildin bætti því við að enda þótt háskólinn bætti við prófessorsembætti í norrænni „Filologi“, eins og ráð- gert væri í frumvarpi til launalaga háskólans, myndi deildin með engu móti mæla með Gísla Brynjúlfssyni til að gegna því embætti. I námsgreininni væru mikilvægir þættir sem hann hefði ekki fengist við svo sem almenn nor- ræn málsaga, tunga og bókmenntir annarra Norðurlanda. Því til viðbótar var heimspekideildin þess fullviss að Gísla léti ekki að eiga hlutdeild að undir- búningi stúdenta undir próf eða reyna kunnáttu þeirra við prófborðið (Aarb. f K0bUniv. 1886-87, 19). Með ofangreindum rökum lagðist heimspekideildin eindregið (indtræn- gende) gegn því að Gísli fengi sæti í deildinni, þar sem kennsla hans væri víðsfjarri starfsvettvangi hennar. Að síðustu var vikið að launahækkun honum til handa og talið viðsjárvert að mæla með henni, þótt hann hefði langan starfsferil að baki, meðan aðrir dósentar sem hefðu unnið til meiri verðleika sem kennarar og höfundar að vísindaritum fengju ófullnægjandi endurgjald fyrir vinnu sína. Háskólaráðið féllst á umsögn heimspekideildar og 13. s. m. skrifaði kennslumálaráðuneytið Gísla að það hefði hvorki efni á né sæi ástæðu til að stofna prófessorsembætti (ordinært Professorat) í sögu Islands og bókmennt- um og sama gilti um að koma því í kring að hann tæki sæti í heimspekideild- inni. Endalok þessa máls urðu til að brjóta Gísla niður. Hann hafði ekki kennt á haustönn 1883 sakir veikinda og eins fór haustmisserið 1886. Hann veiktist á því ári öndverðu. „Hannes Havsteen sagði mér að þú værir enn veikur“, skrifaði Amljótur Ólafsson Gísla 17. ágúst 1886 og bætti svo við: „Það hryggir mig mjög; en eg vona að sumarið bæti úr því, þú þyrftir jafnvel að ferðast, hinn mikli hiti og stöðugi þreytir heilann, hann þarf hvíldar“ (Nks. 3263 4to). Vormisserið 1887 fékk Gísli leyfi frá kennslu. Ólafur Davíðsson greindi séra Eggert Briem frá sjúkleika hans í bréfi 25. febrúar 1887 með þessum kuldalegu orðum: Gísli gamli Brynjúlfsson hefur nú lifað sitt fegursta eða er réttara sagt dauður, þó hann tóri, að minnsta kosti að því er alla fræði snertir. Hann er nefnilega orðinn geggjaður á sönsunum og kominn út á Bistrup (vitlausraspítali). Reyndar hafa vísindin ekki eftir miklu að sjá, þó hann vantaði hvorki gáfur, lærdóm né almenna menntun. Eg veit ekki, hvort heim hefur borist það sem komið er út (eða var í fyrra) af kvæðum hans. Hann fór að gefa út kvæðasafn eftir sig í hitt ið fyrra og áttu að vera einar 20 arkir. í vor sem var voru, ef eg man rétt, komnar út um 140 bls. Meira kernur víst aldrei út, og græt eg þa^ ekki og eg held fáir (Hafnarstúdskv., 220-21).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.