Andvari - 01.01.2001, Page 96
94
AÐALGEIR KRISTJÁNSSON
ANDVARI
og einstakar sögupersónur. Þá var enn haldið til goðheima og fjallað um sam-
band goða og gyðja, og Þór og Loki athugaðir sérstaklega í því viðfangi-
Kvenhetjur Eddukvæða voru einnig teknar til rannsóknar. Dróttkvæðin
gleymdust heldur ekki því að Gísli tók Sonatorrek Egils Skallagrímssonar,
Hákonarmál Eyvindar skáldaspillis og ástavísur Kormáks Ögmundarsonar til
rannsóknar. Síðustu fyrirlestrar Gísla fjölluðu um elstu heimildir um Húna og
Gota jafnt sannsögulegar og þjóðsagnakenndar.
Þessi upptalning staðfestir það sem í upphafi var sagt um Gísla að hann
hafi átt erfitt með að takmarka sig. Fyrirlestrar þeir, sem hér er getið, vörð-
uðu ekki íslenskar bókmenntir og sögu nema að litlu leyti.
I árbókum Hafnarháskóla er tilgreint hve margir sóttu fyrirlestra um hvert
það efni sem farið var í á hverri önn. Stundum er þess getið hve margir þeirra
sem á hlýddu voru í námi í greininni. Það er fljótsagt að fyrirlestrar Gísla
voru margfalt betur sóttir en hjá Konráði, en hjá báðum kom samt fyrir að
hætta varð við fyrirlestra sakir þess að nær engir komu. Einkum bar á þessu
hjá Konráði. Um 1880 fór að bera á því að konur sóttu fyrirlestra í Hafnar-
háskóla. Þess er alloft getið að áheyrendur hafi verið af báðum kynjum hja
Gísla en aldrei hjá Konráði.
Samkvæmt ofanskráðu sóttu 60 áheyrendur fyrirlestra Gísla um Völsunga
og Niflunga á vorönn 1876. Á vorönn árið eftir bar hann saman hugmyndir
um sköpun heimsins í norrænni ^oðafræði við önnur trúarbrögð. Þá fyrirlestra
sóttu milli 40 og 60 manns. Á vorönn 1884 talaði hann um persónur og
atburði í norrænni sögu fyrir 54 áheyrendum og vorið eftir tók hann fyrir að
tala um kvenhetjur Eddukvæða sem 42 hlýddu á. Stundum voru áheyrendur
yfir eða kringum 30. Þetta bendir eindregið til að Gísli hafi átt auðvelt með að
ná til áheyrenda sinna þegar viðfangsefnið gaf tilefni til að hrífa áheyrendur.
Eftir að kvenfólk hóf að sækja fyrirlestra við háskólann fékk Gísli a. m. k. 80
áheyrendur af báðum kynjum. Ekki þarf heldur að efa að orðsnilld hans og
hugmyndaauðgi hefir notið sín við kennsluna og enginn orðið svikinn af, hafi
hvort tveggja verið með sama hætti á kennarastóli og í ræðustól á alþingi.
Gísli Brynjúlfsson og Konráð Gíslason voru samkennarar við Hafnarha-
skóla í rúma tvo áratugi. Kennsluhættir þeirra voru svo ólíkir sem hugsast
gat, þó að þeir væru báðir á sama verksviði virðast fyrirlestrar þeirra sjaldan
hafa rekist á.
Af fyrirlestrum Gísla er það frekar að segja að á haustönn 1876 flutti Gísh
yfirlit á íslensku um endurvakningu íslenskra bókmennta á 16. öld og í upp'
hafi 17. aldar. Fyrirlestrar hans um sköpun heimsins (Kosmogoni) sani-
kvæmt norænum átrúnaði féllu niður nema sá fyrsti. Á vorönn 1877 tók Gísh
fyrir einstaka þætti norrænnar goðafræði (oldnordisk Kosmologi m.m.) og
bar saman við áþekk fyrirbæri hjá suðlægum menningarþjóðum. Einnig fjah'
aði hann um heiðna guði.