Andvari - 01.01.2001, Síða 139
ANDVARI
EN SAMT SKULUM VIÐ STANDA UPPRÉTTIR
137
... ásamt dauðanum sem var einlægur líkt og stjömuhrap úr djúpinu (XIV)
ljósgin gleypandi menn (VI)
Myndir hans eru yfirleitt látlausari og ,eðlilegri‘:
Við létum gamlan dvalarstað að baki
- eins og dagblöð í bréfakörfuna -
Eða brutum við allt í einu glerhimnana
yfir gömlum dögum okkar? (I)
Þetta helgast af skáldskaparaðferð Sigfúsar, og heimssýn, myndir hafa ekki
sjálfgildi í skáldskap hans. Þó að í Ljóðum 1947-1951 séu ein þrjú kvæði
með nokkrum súrrealískum einkennum (VI, IX, XIV) og þeirra sjái einnig
stað í seinni bókum, er Sigfús þó í grundvallaratriðum maður skynsemis-
hyggju og raunsæis í ljóðum sínum, það er kannski eitt höfuðeinkenni hans.
Það er hinsvegar ekki rétt, einsog ljóðadæmin hér að framan sýna raunar, að
Ijóð Sigfúsar séu yfirleitt ómyndræn.
Ég sé að ég hef ekki nefnt orðið módemisma á nafn í þessari grein.
Kannski er óhætt að hengja þá regnhlif um sinn á snaga inní geymslu við
hliðina á atómskáldaheitinu.
„Myndlist er línurit af menntun manns, þroska og hugarfari,“ sagði Nína
Tryggvadóttir í samtali við Matthías Johannessen 1967.50 Slíkt hið sama má
auðvitað segja um fleiri mannanna verk og fleiri listgreinar, tilaðmynda ljóð-
listina. Lítið ljóð eða heil ljóðabók eru að vísu sjálfstæðar verundir eftir að
skáldið er búið að sleppa af þeim hendinni, en jafnframt órækur vitnisburð-
ur um menntun skáldsins, þroska þess og hugarfar. Þaraðauki bera þau vitni
tíma sínum og tíðaranda. Og þó við hljótum að lesa Ljóð 1947-1951 einkum
vegna ljóðanna sjálfra sem bókin hefur að geyma, má líka virða hana fyrir
sér sem slíkt línurit.
Ég vil þakka öllum sem hafa lesið þessa grein yfir í drögum eða rætt við mig um efni hennar.
TILVÍSANIR
1 Einar Sigurðsson landsbókavörður í samtali við ÞÞ í maí 2001.
2Sigfús Daðason: Ritgerðir og pistlar, Forlagið 2000, bls. 202.
’ Sigurður B. Þorsteinsson læknir í samtali við ÞÞ í ágúst 2001.
4Ingibjörg Daðadóttir í samtali við ÞÞ í maí 2001.
5Jón Oskar: Gangstéttir í rigningu, Iðunn 1971, bls. 27-34.
6 Ritgerðir og pistlar, bls. 27.
7Peter Carleton: „Tradition and Innovation in 20th Century Icelandic Poetry“, Berkeley
1967, bls. iii.