Andvari - 01.01.2008, Page 25
andvari
BJARNI BJARNASON
23
Bjarni íþróttakennari, ásamt leikfimijjokki, líklega í Hajnarfirði.
Biskupstungnahreppur, Grímsneshreppur, Þingvallahreppur og að
hluta til Grafningshreppur. Eigi að síður var hafist handa með til-
styrk kennslumálayfirvalda, en Jónas Jónsson frá Hriflu, einn fremsti
aðdáandi Laugarvatns, varð dóms- og kennslumálaráðherra 1927.
Þegar séð var að ekki yrði aftur snúið með skólastofnun á Laugarvatni
kom styrkur frá Árnessýslu, þó ekki fyrr en 1929. Húsameistari rík-
isins, Guðjón Samúelsson, ákveðinn stuðningsmaður Laugarvatns sem
skólaseturs, hafði gert hina rómuðu teikningu sína að skólahúsi, bursta-
byggingu. Verkið sjálft hófst ekki fyrr en 12. júní 1928 en samt tókst
að koma skólanum á fót þá um haustið. Þessa er getið hér til skýringar
á því hve hægt miðaði í fyrstu við uppbyggingu Laugarvatnsskólans og
hve stórvaxið verkefni beið starfsmanna hans og frumbýlingsaðstæður
að flestu leyti.17
Lramkvæmdum við skólann árið 1928 er lýst svo í bókinni Laugar-
vatnsskóli þrítugur.
Reistar voru tvær burstir og anddyri eins og áætlað var, steyptur hattur yfir
aðalgufuhverinn og gufan leidd heim í eldhús til suðu. Leitt var kalt vatn í ofna
sem sökkt var í hverinn, og síðan var lögð tvöföld leiðsla frá þeim heim í hús