Andvari - 01.01.1950, Blaðsíða 45
andvari
Páll Eggert Ólason
41
málum lúta, eins og skylt er að gera, þá er víst, að það eru fræða-
og ritstörfin, sein hér mynda meginþættina. Þeirra mun lengst
verða minnzt, og þau munu minna á sig og geyma nafn þess,
er vann þau, um langa framtíð, eða meðan þjóð vor ann „sög-
unnar lifandi, stóra viðfangsefni", eins og síra Matthías komst
að orði. Það mun á engan hátt rýra gildi ævistarfs dr. Páls Egg-
erts, þó að sögurýnendur síðari tíma kunni að hnika til dómum
hans um ýmis efni, jafnvel í mikilvægum atriðum. Slíkt hlýtur
að gerast í smærra eða stærra stíl um öll „lifandi viðfangscini",
þar sem hver einn, er hönd leggur á plóginn, fær sér eigi veitta
nenra naumt útmælda starfstíð, auk þess sem það er alkunna og
a við bæði um einstaklinga og kynslóðir, að „sínum augum lítur
liver á silfrið". En sú viðurkenning, sem þjóð vor hefir þegar
yeitt dr. Páli Eggert og eigi mun haggast, er þessi: Elann var
Cjnn hinn mikilvirkasti fræðimaður, sem þjóð vor hefir eignazt,
hrautryðjandi um könnun á merku og örlagaríku tímabili sögu
vorrar og um sína daga sennilega fróðastur allra manna um sögu
vora í heild, enda handgenginn þeim heimildum, er söguna
Varða, skarpskyggn á gildi þeirra og ötull að vinna úr þeim.
Sagan hefir löngum verið mörgum með þjóð vorri heillandi
viðfangsefni. Og þ ess ber að vænta, að svo rnuni enn verða á
ókomnum tímum. Þeir sem helga sögu vorri starfskrafta sína á
'kan hátt og dr. Páll Eggert Ólason gerði, eiga mikilvægan þátt
1 að efla áhrifamátt hennar meðal samtíðar sinnar og komandi
kynslóða. Þeir gera Ijósari þau rök, er leiða þjóð til sæmdar og
S1gra eða til falls og fjötra. Þeir veita þjóð sinni leiðsögn til þess
að hún megi þekkja sjálfa sig, skyldur sínar og ákvörðun í at-
8eni og afrekum sinna beztu manna.