Andvari - 01.01.1950, Qupperneq 68
64
Barði Guðmundsson
ANDVARI
„Sighvatur og Sturla fóru að Þorvarði norður til Eyjafjarðar, en
Þorvarður stökk undan norður til Reykjadals. Þá fóru menn í
millum og fundust þeir og var ger sætt, og hélzt eigi af Þor-
varðs hendi.“ 1 annarri heimild er svo greint frá alþingishaldi
1259 á þennan veg: Gissur jarl reið til þings um sumarið. —
„Gjörðust þeir Sturla og Sighvatur þá menn jarls, en hann hét
þeim liðveizlu sinni til hefnda eftir Þorgils. Á þessu þingi var
lýst hernaðarsökum á hendur Þorvarði. Sótti Sighvatur Þorvarð.
Varð hann sekur fullri sekt og margir þeir menn, er verið höfðu
að Hrafnagili." En þar með var eigi vígsmáli Þorgils lokið, svo
scm nú skal greina eftir sögu hans:
„Sighvatur gjörði bú að Stað á Snæfcllsnesi. Var liann mikils
háttar maður. Var með þeim Gissuri og Sighvati aldrei fullur
trúnaður. Brauzt það á milli, að Gissuri þótti Sighvatur eiga
að rekast eftir Þorvarði, en Sighvati þótti Gissur aldrei vilja veita
sér . . . . Vigfús Gunnsteinsson sat að Sauðafelli, og hiifðu þeir
Sighvatur þá sætzt á sín mál, og skyldi þar heita hlcytivinátta.
Milli þeirra Þorvarðs og Vigfúss höfðu farið vináttumál. Þeir
fundust að Keldum, og var Vigfús lengi með Þorvarði um vetur-
inn. En er Vigfús kom heim, fann hann Sturlu, mág sinn, og
bað, að Sturla skyldi draga saman sætt með þeim Þorvarði og Sig-
hvati. Bar Vigfús þá fram orðscnding Þorvarðs og sættarhoð og
flutti það með mikilli kunnátlu. Sturla fýsti sætta og kvaðst
þykja ósýn leiðrétting um hefndir eftir Þorgils, þótt svo búið
stæði." Var þá fundur ákveðinn með málsaðilum og var hann
haldinn hinn 3. apríl 1262 í Laugarási í Biskupstungum. „Gekk
þá sætt saman“ og fór málið í sex manna dóm. Er Vigfús Gunn-
steinsson talinn fyrstur dómenda af Þorvarðs hendi. „Sagði Sturla
upp gerðina, að þeir gerðu hálft annað hundrað hundraða fyrir
víg Þorgils" en „Þorvarður var eigi úr landi ger .... Vígshætur
allar, þær sem dæmdar voru fyrir víg Þorgils, greiddi Þorvarður
vel og skörulega.“
Svo sem áður er sýnt, lætur höfundur Rindilsþáttar húsfreyj'