Andvari - 01.01.1950, Blaðsíða 52
48
Barði Guðmundsson
ANDVARI
um og tók við búi á Grund. Verður því að byggja fylgdarmanna-
sveit hans skipaða Austfirðingum og eins og á stóð um ferð hans
njósnarmanninn valinn úr því liði.
III. HÁLFDANARTUNGUR.
Þau einkenni Ilalldórs skrafs, sem nú var lýst, finnast hjá
Rindli og eru dregin fram í berum orðum. Rindill ber nafn með
rentu. Utliti hans og líkamsatgervi er lýst í þeirri spurningu, sem
Guðmundur ríki kastar fram, þegar hann sá Rindil fyrsta sinni.
Það var í Svínfellingabúð. „Hefir þú nokkurn þann séð, að síður
sé nokkurs verður en þessi maður?“ segir Guðmundur við Vigfús
Víga-GIúmsson og bætir svo við: „Eigi befi ég séð þann rnann,
er betur sé fallinn til flugumanns en sá.“ Hann veik að honum
og mælti: „Hvað heitir þú?“ „Ég heiti Þorbjörn," scgir hann
„og kallaður Rindill, austfirzkur að ætt.“ Guðmundur ráðleggur
Rindli að koma norður á fund sinn eftir Alþingi. „Mátt þú
koma norður í sumar og leita þér þar margra vista, en ráð þig
hvergi, fyrr en þú finnur mig.“ .... Skildu menn svo af þinginu.
Og er þeir komu á Eyfirðingaleið, var þar kominn Rindill og
var allhjaldrjúgur við marga menn. Þá mælti Guðmundur: „Hver
er sá maður, er nef hefir í eyra hverjum manni og falar sér missera-
vistir víða, en ræður af enga?“ Hann svarar: „Ég heiti Þorbjörn, eða
viltu taka við mér, Guðmundur?" Hann kvaðst það gera, ef
hann vildi .... Síðan fór hann þangað til Möðruvalla og var þar
um hríð. Einn dag mælti Guðmundur við hann: „Mun nú eigi
ráð, að þú takir til sýslu?" Hann lét það vel fallið. Var honum
nú fenginn ljár, og sló hann. Guðmundur mælti: „Eigi muntu
þessu verki vanur vera. Eða þykir þér nokkuð hægara að ríða lil
laugar urn daga?“
Hér er farið eftir C-gerð. Allt, sem máli skiptir í frásögninni,
minnir á Ilalldór skraf og Hrafnagilsför hans. Rindill er óvenju-
legt ómenni, hjaldrjúgur og hefir nef í eyra hverjum manni-
Eru samtöl þcirra Guðmundar bersýnilega gerð til þess eins að