Andvari - 01.01.1950, Blaðsíða 111
ANDVARI
Stefnt að höfundi Njálu
107
mjög líkan hátt: „Síðan komu þeir Guðmundur í túnið og kvödd-
ust þcir Guðmundur og Hlenni.“ „Nú kom flokkur Gissurar 1
tún. Þórður bóndi Ormsson gekk út og heilsaði Gissuri." í Ljós-
vetninga sögu stendur einnig: „Það var um sumarið, að Guð-
mundur vildi láta slá í túni sínu. Þá mælti hann við Rindil, að
hann myndi til taka að slá um hús.“ Hér er og berlega átt við
bæjarstæði. En það sem í fornmáli venjulega kallast tún og
ætíð í nútímamáli nefnir höfundur Ljósvetninga sögu völl. „Þeir
reiddu hann aftur og fram eftir vellinum" er sagt um þá Veisu-
menn. Fcr nú að verða freistandi að hyggja Þórð, son Þorvarðs
í Saurbæ, er var tengdasonur Sturlu Þórðarsonar og dóttursonar-
sonur Þorvarðs Þorgeirssonar, sem vitnað er til urn Veisubragð,
höfund að frumgerð Ljósvetninga sögu og löngum köflum í
Sturlungu. Bezt er þó í bili að kalla þetta aðeins hughoð, því
að röksemdafærslan um sjálft höfundarnafnið er nær því á byrj-
unarstigi.
Á því getur vart vafi leikið, að Þorvarður í Saurbæ sé hafður
í huga, þá er Hlcnna er lýst. Hann hjó í Saurbæ á ofanverðri
10. öld og er í Landnámu og Kristnisögu kallaður „hinn gamli.
Höfundur Ljósvetninga sögu gefur honum nýtt kenninafn og
kallar hann „hinn skakka.“ Hvaðan það muni vera runnið, má
Hra nærri um. Árið 1200 kom Guðmundur góði í heimsókn til
Einars hónda Ólafssonar í Saurbæ. Er þannig greint frá komu
hans þangað í Biskupasögum: „Þar var sveinn einn. Hann var
krypplingur og illa haldinn af ofverkjum, svo að hann mátti
varla standast. Einar bóndi ræddi um, að Guðmundur prestur
mundi vilja korna til hans og syngja yfir honum. Hann fer til
°g syngur yfir honum lengi og ríður á hann vatni sínu og gerir
hann allan votan. En eftir það þá tekur sveinninn að réttast þegar
°g varð hann skjótt alheill þessa meins. Þessa sveins verður getið
síðar í sögunni." Af sögupersónum koma ekki aðrir til álita en
Þorvarður í Saurbæ. Þar var þá til heimilis Hallhera móðir hans,
sem sjá má af sömu heimild. Ilefir sýnilega sögn gengið um