Menntamál - 01.04.1967, Qupperneq 32
26
MENNTAMAL
Fjórða og kannske mikilvægasta atriðið ielst í setninga-
skipaninni. Lágstéttarbörnin höfðu rnjög lítinn forða auka-
setninga á reiðum höndum. Einkum voru það setningar,
sem hófust á because (af því að). Þegar farið var að athuga
þessar setningar og merkinguna, sem börnin höfðu lagt í
þær, tilgreindi because ekki orsökina. Öllu heldur var þetta
einskonar formúla til að skýra allt samband milli athafna,
hvort sem um afleiðingu eða orsök var að ræða: börnin
greindu ekki afleiðingu frá orsök. Þetta skiptir miklu, vegna
þess að orsaka- og afleiðingatengsl eru merkileg tæki manns-
andans til að greina veröldina eftir skynsamlegum, rökræn-
um og viðráðanlegum reglum. Hin skynsamlegu hlutföll or-
saka og afleiðinga urðu því útundan í máli þessara barna;
hins vegar skiptu þær aðalmáli í setningaskipan miðstéttar-
barna. Hér skal farið skjótt yfir sögu og því sagt án frekari
umsvifa, að aðgreining setninganna í tilvísunarsetningar,
tíðarsetningar, afleiðingasetningar, orsakasetningar o. s. frv.
mynda í huga miðstéttarbarnsins smám saman, frá fyrsta
skólaári og fram til fimmta eða sjötta skólaárs, æ fullkomn-
ara kerfi til að tjá sig: túlkunarkerfi fyrir veruleikann í
orðum. Hins vegar festist tjáningar- og setningakerfi lág-
stéttarbarnanna að mestu leyti í þeirri setningaskipan,
sem þau höfðu vald á, er þau komu fyrst í skólann. Það
hélzt óbreytt og ógreint, að mestu aðalsetningar, fáar
og fátæklegar aukasetningar með lítt analytískum blæ.
Það þarf flókna setningaskipan til að túlka í orðum flók-
inn og afstæðan veruleika og skilning á flóknum sam-
skiptum milli hluta veruleikans; hins vegar lýsir skiln-
ingur á flóknum veruleika sér einmitt í flókinni setninga-
skipan (complex syntax), sem byggist upp í samræmi við
hugsun barnsins. Lágstéttarbörnin hugsuðu eins og óbifan-
leg setningaskipan þeirra mælti fyrir um. Hið fasta mál-
kerfi, hin ósveigjanlega setningaskipan mælti svo fyrir um
þá hugsun, sem var möguleg innan kerfisins. Setningakerfi
miðstéttarbarnanna varð að einskonar driffjöður fyrir hugs-