Menntamál - 01.04.1967, Blaðsíða 52
46
MENNTAMÁL
má ný mengi úr öðrum, á sama hátt og nota má sam-
lagningu og margföldun til þess að framleiða nýjar
tiilur úr öðrum sem lyrir eru. Myndun sammengja og
sniða eru reikningsaðgerðir sem minna á samlagningu
og margföldun og eru hliðstæðar þeim á ýmsan hátt.
Barn sem er vanið á að setja hluti upp á þennan
hátt, sér þá í (iðru Ijósi en ella og skilur þá á annan
hátt. Norski stærðfræðingurinn Ingebrigt Johansson
segir frá litlum frændum sínum, er hann hal'ði sýnt
margföldunartöfluna sem mengi:
Margfeldi af 2
- -3
_ _ 4
- - 5
- -6
{2,4,6, 8, 10, 12,
{ 3, 6, 9, 12, 15, . ,
{4, 8, 12,......
{5, 10, 15.......
{ 6, 12,.........
}
}
}
\
og þannig áfram. I’eir heyrðu hann nelna prímtölur
og spurðu hann hvað það væri. Hann sagði þeim að
prímtala væri tala, sem ekki væri deilanleg með öðr-
um tölum en einum og sjálfri sér. Hann fann á þeim
að þeir skildu þetta ekki vel, en nokkru seinna kemur
annar þeirra til h'ans og segir: „Er þá ekki prímtala
tala sem kemur fyrir í sínu margfeldamengi en engu
(iðru?“ Hann hafði séð það sem máli skipti á rnengja-
skránni (2, 3 og 5 koma fyrir í sínu menginu hver og
livergi annarsstaðar, þar sem 4, 6, 8, 10, 12 og 15 koma
allar fyrir í fleiru en einu mengi).
Annað hugtak sem allir kenn-
arar þekkja af reynslu, hvort
sem þeir hafa heyrt það nefnt
eða ekki, er venzl. Meirihluti þess reiknings sem kennd-
ur er í unglingaskólum ljallar um hlutföll: Söluverð
stendur í réttu hlutfalli við kaupverð, vextir í réttu
hlutfalli við tímalengd, arfi er skipt milli bræðra í
Vcnzl