Menntamál - 01.04.1967, Side 72
66
MENNTAMÁL
skráin verður tekin til endurskoðunar, en það dregst von-
andi ekki lengi.
í þessu sambandi er rétt að benda á, að hinn takmarkaði
tími, sem eðlisfræðinni er ætlaður, nýtist illa vegna þess,
að iítið samband er milli námsefnis annars og þriðja árs
gagnfræðaskólanna, svo í reynd verður hfutur eðlisfræðinn-
ar minni en kennslustundafjöldinn gefur tif kynna.
4. íslenzkar kennslubœkur í eðlisfrœði.
Þrjár kennsiubækur í eðlisfræði fyrir gagnfræðaskóla eru
til á íslenzku. Tvær þeirra eru frumsamdar og ein þýdd. Ég
tel að allar þessar bækur séu fjarri því að fullnægja þeim
kriifum, sem gera þarf til kennslubóka í dag. Engin kennsla
í eðlisfræði fyrir unglinga getur náð tilgangi sínum, ef nem-
endaæfingar eru ekki snar þáttur kennslunnar. Aðstaða til
slíkra æfinga hefur fram að jressu vart verið fyrir hendi í ís-
lenzkum gagnfræðaskólum, og er því ekki við því að búast,
að hinar íslenzku kennsfubækur geri ráð fyrir slíku. Hin
þýdda kennslubók gerir hinsvegar ráð fyrir nemendaæfing-
um, en án þeirra er þessi kennslubók enn óheppilegri til
kennslu hér en hinar frumsömdu. En þó að slík aðstaða
væri fyrir hendi, er bókin langt frá því að uppfylla fyrr-
nefndar kröfur, hún er löngu úrelt.
Beri maður saman kennslubækur okkar við sumar ný-
legar erlendar kennslnbækur, liggur manni helzt við að
örvænta, svo langt standa þær þeim erlendis að baki. Það er
ófyrirgefanlegt sinnuleysi að bæta ekki sem skjótast úr hin-
um alvarlega skorti á góðri kennslubók.
5. Aðstaða t.il verklegrar kennslu i. isl. gagnfræðaskólum.
Um það þarf varla að deila, að skilyrði góðrar eðlisfræði-
kennslu séu nemendaæfingar og sýnikennsla. Meðal ná-
grannaþjóða okkar er þetta yfirleitt leyst með sérkennslu-
stofum. Fyrsta sérkennslustofan fyrir eðlisfræði í íslenzkum
gagnfræðaskóla var, að því er ég bezt veit, í Gágnfræðaskóla