Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1944, Page 33
ALMANAK 1944
33
mæralínu Bandaríkjanna og Canada um nokkur undan-
farin ár.
Andrés er þjóðrækinn Islendingur, en um leið þjóð-
hollur Ameríkumaður. Hefir hvorttveggja komið marg-
víslega fram í opinberu starfi hans bæði á þingi og einnig
heima í héraði. Á þingmennskuárum sínum lét hann það
aldrei liggja í láginni að hann væri Islendingur og væri
stoltur af því. Ymsar af ræðum hans í þingsölum vöktu
athygli á þessu efni. Þingmaður einn gat þess eitt sinn
til í ræðu, að ef til vill hefði Kolumbus haft einhverjar
fregnir af ferðum Leifs heppna vestur um haf, og hefði
það orðið honum hvöt til að leita nýrra landa í vestur-
höfum. Ráku þá þingmenn upp hæðnishlátur mikinn svo
kvað við í salnum. Þá stóðst fslendingurinn ekki mátið.
Hvaddi hann sér hljóðs, og rakti í stórum en skýrum
dráttum sögu þeirra feðga Eiríks rauða og Leifs. Gat hann
þess að eiginlega hefði Leifur verið í trúboðserindum
fyrir kaþólsku kirkjuna er hann hrakti upp að ströndum
Ameríku, og taldi sjálfsagt að hann hefði gert yfirmanni
sínum, páfanum, grein fyrir þessari ferð, enda væru bréf
þessu til staðfestu enn til í páfagarði. Ekkert væri þá
h'klegra en að ísabella Spánardrottning hefði fengið
fregnir af þessu hjá hinum heilaga föður, áður en hún
sendi Kolumbus út af örkinni. Klykti hann svo út með
því að vitna í ræðu Coolidge forseta, sem hann flutti á
Norðmannahátíðinni miklu í St. Paul, árið 1925 þar sem
honum fórust meðal annars orð á þessa leið: “Vér erum
of ókunnug íslensku þjóðinni, en það var hún sem lét
loga skært á lampa menningarinnar, þegar það var um
það bil að slokkna á honum á meginlandi Evrópu á mið-
öldunum.” Er Andrés hafði lokið ræðu sinni kvað við
lófaklapp í stað hæðnishlátursins sem áður hafði fylt
salinn.
Heima í Blaine hefir hann ávalt verið áhugasamur
um viðhald íslenska þjóðararfsins, og hefir starfað að