Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1944, Page 37

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1944, Page 37
ALMANAK 1944 37 það og gleymist við neyzlu ljúffengra rétta húsfreyjunnar. Margir munu þeir vera, víðsvegar um álfuna og á Islandi, sem bera vitni um varanleg vináttubönd sem hafa mynd- ast á heimili, og yfir borðum þessara góðu hjóna. Er litið er yfir æfi og starf Andrésar Daníelssonar, hlutdrægnislaust, getur engum dulist að þar er maður á ferð sem er verður eftirtektar og viðurkenningar fyrir hæfileika og dugnað. Hann hefir á margán hátt verið Islendingum til sóma, og í öllu sem hann hefir beitt sér fyrir hefir hann reynst hinn nýtasti maður. En upplag hans og skapgerð hafa valdið því að það hafa staðið um hann stöðugir stormar. Óhætt má fullyrða að hann hefir sjálfur kosið sér það hlutskifti að standa þar sem næðing- arnir hafa blásið. Hann elskar storminn í hvaða mynd sem hann skellur á og býður honum byrginn. Hann er hugsjónamaður í hjarta sínu, en ákafamaður í lund og sést lítt fyrir þegar við andstöðu er að etja. Hann hefir átt ákveðna vini og fylgismenn, bæði heima í héraði, og á sviði hinna víðtækari viðfangsefna sinna, menn sem hafa þekt hann og metið áhuga hans, manndáð og dreng- lund. Jafnvel þeir sem aldrei hafa fylgt honum að málum hafa gefið honum þann vitnisburð að þeir þektu engann sem er greiðviknari þegar á liggur, eða fljótari til að veita aðstoð ef slys eða óhamingju ber að höndum. Hins vegar hefir hann átt svarna mótstöðumenn sem hafa fundið honum flest til foráttu, og sjá öll orð hans og gjörðir í gegn um lituð gleraugu flokksfylgis og fordóma. Um slíkt er ekki að fást, enda má telja það næsta hversdags- legt fyrirbrigði í sögu íslenzkra félagsmála báðu megin hafsins. En þar sem skoðanir manna á einhverjum með- bræðra þeirra eru svo mjög sundurleitar, má telja það vott þess að eitthvað töluvert sé í manninn spunnið. Lyndiseinkunnir koma oft fram í smáatvikum, án þess menn viti af því. Andrés hefir mikið yndi af að tefla. Taflið er táknrænn leikur sem minnir á hina eilífu bar-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.