Kirkjuritið - 01.09.1950, Blaðsíða 31
Góðir gestir,
Síðari hluta júnímánaðar komu hingað til lands nokkrir
fulltrúar á vegum Kirknasambands Norðurlanda (Nordisk
ökumenisk Institut) til þess að kynnast kirkjumálum hér
á landi og treysta sambandið milli kirkju íslands og hinna
Norðurlandakirknanna. Foringi fararinnar var dr. theol.
Manfred Björkquist, Stokkhólmsbiskup, einn af ágætustu
mönnum kristninnar í Svíþjóð. Er hann mörgum kunnur
hér á landi, því að ýmsir íslendingar hafa sótt nám til
Sigtúna, þar sem hann var skólastjóri langa hríð, og sumar
bóka hans hafa hingað borizt. Frú hans var með honum.
Annar fulltrúi frá Svíþjóð var dr. Harry Johansson, for-
stöðumaður Sigtúnastofnunarinnar, og var einnig frú hans
með honum. Frá Noregi var Kristian Hansson, skrifstofu-
stjóri í kirkjumálaráðuneytinu, frá Danmörku dr. Regin
Prenter prófessor frá Árósum og frá Finnlandi Vaino Mar-
janen prófastur í Ábo. Þeir fluttu hér allir erindi, og flestir
þeirra prédikuðu einnig. Þeir ferðuðust til Þingvalla, Gull-
foss, Geysis, Skálholts og austur í Fljótshlíð, og fannst
þeim mjög til um fegurð landsins og sögulegar minningar.
Seinasta daginn, sem fulltrúamir voru hér, sátu þeir
fund með biskupi og nokkrum fleiri andlegrar stéttar
mönnum, og var þar ákveðið, að kirkja Islands skyldi
gjörast aðili í Kirknasambandi Norðurlanda og eiga fram-
vegis fulltrúa í stjórn þess.
Fulltrúarnir fóru héðan 27. júní. Þeir eignuðust hér
ýmsa vini, sem lengi munu minnast þeirra með þökk.
Þá dvöldust hér í sumar nokkru lengur séra Finn Tulin-
ius með frú sinni og tveimur dætrum og séra Dag Möller,
sonur dr. Arne Möller. Þeir eru báðir af íslenzkum ættum
og ágætir vinir og fulltrúar Islands í Danmörku. Kirkjio-
ritiö vottar þeim þakkir fyrir það og árnar þeim og ást-
vinum þeirra allrar blessunar.