Kirkjuritið - 01.09.1950, Page 47
Prestastefnan 1950.
Prestastefnan sett.
Prestastefna íslands var haldin í Reykjavík dagana 21.—23.
júní. Hún var ágætlega sótt. Munu hafa setið hana um 80 prest-
vígðir menn auk nokkurra guðfræðinema og guðfræðikandídata.
Ágætir gestir frá Norðurlöndum settu mjög svip sinn á hana.
Skömmu eftir hádegi hófst guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Séra
Jón Kr. ísfeld prédikaði, en séra Jón Þorvarðsson prófastur frá
Vík þjónaði fyrir altari. Tóku þeir báðir viðstadda presta og
fleiri til altaris. Guðsþjónustan var mjög hátíðleg.
Stundu eftir nón var prestastefnan sett í kapellu Háskólans.
Dr. Páll ísólfsson og Þórarinn Guðmundsson fiðluleikari léku
á orgel og fiðlu. Þá las biskup Ritningarorð og bað bænar.
Síðan var sunginn sálmurinn: Þú, Jesús, ert vegur til himinsins
heim.
Því næst var gengið í hátíðasal Háskólans, og flutti biskup
þar ávarp það til sýnóduspresta, er hér fer á eftir.
ÁVARP BISKUPS.
Kæru starfsbræður.
Á vorum dögum er sennilega meira um ráðstefnur og
þing með þjóðum heims en áður eru dæmi til. Til þess
liggja eðlilegar ástæður. Vandamál heimsins eru fleiri og
stórfelldari en nokkru sinni fyrr og samgöngur milli landa
og heimsálfa gjörbreyttar, svo að tiltölulega er auðvelt að
koma slíkum samfundum á. Ýmsir efast um að þessar ráð-
stefnur leysi vandamálin og telja þær fremur gagnslitlar.
Má vera, að svo sé um sumar þeirra. Hitt er þó vafalaust
rétt, að án þeirra mundi lítil viðleitni og skammt þoka