Kirkjuritið - 01.09.1950, Page 55

Kirkjuritið - 01.09.1950, Page 55
PRESTASTEFNAN 1950 207 Séra Þorsteinn Ó. Briem lézt hinn 16. ágúst, rúmlega sextug- ur að aldri. Hann fæddist að Frostastöðum í Skagafirði 3. júlí 1885. Foreldrar hans voru Ólafur Eggertsson Briem fyrrum bóndi og alþingismaður og kona hans, Halldóra Pétursdóttir. Hann útskrifaðist úr Prestaskólanum í Reykjavík 1908 og sigldi síðan til framhaldsnáms til Danmerkur og Svíþjóðar. Hann vígðist árið 1909 aðstoðarprestur til séra Jens Pálssonar í Görðum á Álftanesi, veitt Grundarþing 1911, Mosfell í Gríms- nesi 1918 og Garðar á Akranesi 1921, og gegndi því embætti til 1946, er hann fékk lausn frá störfum vegna heilsubrests. Hann var prófastur í Borgarf jarðarprófastsdæmi 1931—1946. Séra Þorsteinn Briem var einn af merkustu prestum íslenzku kirkjunnar, hafði mikla kennimannshæfileika og var prýðileg- um gáfum gæddur, enda voru honum um ævina falin mörg vandasöm og ábyrgðarmikil störf bæði innan kirkju og utan. Hann átti meðal annars sæti í kirkjumálanefnd 1929—30, var fulltrúi prestanna í kirkjuráði frá 1932. Sat á Alþingi 1934— 42 og var kirkjumálaráðherra 1932—1934 og jafnframt atvinnu- og samgöngumálaráðherra. Hann hefir og ritað margar greinar í tímarit og blöð. Séra Þorsteinn var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Valgerð- ur Lárusdóttir fríkirkjuprests Halldórssonar, en hún andaðist 1924. Síðari kona hans var Oktavía Emilía Pétursdóttir Guð- johnsen og lifir hún mann sinn. Fyrir hönd prestastéttarinnar og kirkjunnar þakka ég öllum þessum bræðrum vorum heillarík og og farsæl störf á akri kirkju og kristni landsins og bið yður alla að rísa úr sætum til þess að minnast þeirra og votta þeim þakkir og virðingu. Drottinn blessi þá, störf þeirra og minningu. Ennfremur hafa á árinu látizt fjórar prestsekkjur: Frú Björg Einarsdóttir frá Dvergasteini, frú Guðrún J. Jóhannesdóttir frá Bergstöðum, frú Jóhanna Pálsdóttir frá Bíldudal og frú Sigríður Hansdóttir Beck frá Hofi í Álftafirði. Frú Björg Einarsdóttir var fædd að Stakkahlíð í Loðmundar- íirði 23. júlí 1873. Hún giftist hinn 23. júlí 1892 séra Bimi Þorlákssyni að Dvergasteini, og bjuggu þau þar fram til 1926,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.