Kirkjuritið - 01.09.1950, Side 59
PRESTASTEFNAN 1950
211
7 Breiðabólsstaðarprestakall í Snæfellsnesprófastsdæmi, og
þjónar því eins og áður hinn setti prestur séra Sigurður M.
Pétursson.
8. Staðarhólsþing í Dalaprófastsdæmi, er prófasturinn í
Hvammi þjónar.
9. Brjánslækjarprestakall í Barðastrandarprófastsdæmi. Því
þjónar presturinn í Flatey.
10. Sauðlauksdalsprestakall í Barðastrandarprófastsdæmi, er
prófasturinn á Patreksfirði þjónar.
11. Hrafnseyrarprestakall í V.-ísafjarðarprófastsdæmi. Prest-
urinn á Bíldudal þjónar.
12. Staðarprestakall í Aðalvík í N.-ísafjarðarprófastsdæmi, og
þjónar þar presturinn að Stað í Grunnavík.
13. Ögurþing í N.-ísafjarðarprófastsdæmi. Þar þjónar prófast-
urinn í Vatnsfirði.
14. Árnessprestakall í Strandaprófastsdæmi, er presturinn í
Staðarprestakalli þjónar.
15. Svalbarðsþing í N.-Þingeyjarprófastsdæmi, og þjóna því
prófasturinn á Sauðanesi og presturinn á Skinnastað.
Árið áður var tala hinna óveittu prestakalla 17.
Kirkjubyggingum í landinu miðar hægt áfram. Veldur þar
þó eigi um áhugaleysi eða tómlæti safnaðanna um þau mál,
heldur sívaxandi dýrtíð og erfiðleikar á útvegun byggingcir-
efnis.
Laugarnesskirkja í Reykjavík er nú fullsmíðuð og var vígð
hinn 18. desember s.l. Er hún hið vandaðasta og prýðilegasta
guðshús, 25 metrar að lengd og 11,5 metrar á breidd og með
20 metra háum turni. Rúmar kirkjan 300 manna í sæti. Bygg-
ingarkostnaður hefir numið 1 miljón og 165 þús. kr.
Hinn 4. september s.l. var vígð kirkja að Möðrudal á Fjöll-
um, er Jón bóndi þar Stefánsson hefir smíðað og kostað að
öllu leyti. Möðrudalssókn er fámennasta sókn landsins, og eru
þar aðeins tveir bæir. Þar var með öllu kirkjulaust um hríð,
en nú hefir kirkjubóndinn myndarlega úr því bætt, með bygg-
ingu þessarar einkar snotru og vönduðu kirkju.
Nokkrar aðgerðir hafa farið fram á eldri kirkjum. Má þar
einkum nefna Árbæjarkirkju, Hábæjarkirkju, Stórólfshvols-
kirkju, Grindavíkurkirkju og Hafnarfjarðarkirkju.