Kirkjuritið - 01.09.1950, Page 68
220
KIRKJURITIÐ
um Dómkapítula á íslandi og viðhorf í nútíma guðfræði.
Morgunbænir fluttu þeir Ásmundur Guðmundsson prófessor
og séra Þorgrímur Sigurðsson frá Staðastað.
Lok prestastefnunnar.
Prestastefnunni lauk með því, að biskup ávarpaði prestana,
þakkaði þeim komuna og samstarfið og árnaði þeim blessunar
Guðs í störfum þeirra. Einnig þakkaði hann erlendu gestunum
og bað þá flytja kveðjur frá íslenzku kirkjunni til systurkirkn-
anna á Norðurlöndum. En dr. Manfred Björkquist biskup þakk-
aði fyrir hönd gestanna og bað kirkju íslands og þjóð bless-
unar Guðs. Þá var gengið í kapelluna, og flutti biskup þar bæn
og sagði prestastefnunni slitið.
Um kvöldið höfðu biskupshjónin boð inni fyrir prestana og
erlendu gestina og frúr þeirra. Leið kvöldið mjög ánægjulega
við söng og ræðuhöld og höfðinglegar veitingar.
Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup
átti 40 ára prestsvígsluafmæli 26. júní. Hann hefir jafnan
þjónað Dómkirkjusöfnuðinum öll þessi ár af mikilli alúð og at-
orku og við virðingu og vinsældir. Hefir verið ákveðið að gjöra
myndir af þeim hjónum, séra Bjama og frú Áslaugu Ágústs-
dóttur, konu hans.
Heiðursgjöf til prófastshjónanna á Húsavík.
Prófastshjónin á Húsavík áttu silfurbrúðkaup sunnudaginn
4. júlí. Að lokinni messu í Húsavíkurkirkju þann dag afhenti
sýslumaður og varaformaður sóknamefndar þeim frá söfnuð-
inum fagra mynd af kirkjunni greypta í silfurskjöld og þakkaði
þeim heillarík störf á liðnum árum.
Demantsbrúðkaup
áttu þau 23. júlí prestshjónin frá Grímsey, séra Matthías
Eggertsson og frú Guðný Guðmundsdóttir. Er hann nú 85 ára
að aldri og hún 81, og liggur eftir þau mikið og fagurt sevi-
starf. Séra Matthías mælti nokkrum orðum í útvarp til safn-
aðar síns á síðasta afmælisdegi sínum, og munu þau ekki
gleymast þeim, er á hlýddu.