Kirkjuritið - 01.09.1950, Síða 101
Aðalfundur Prestafélags Suðurlands,
Aðalfundur Prestafélags Suðurlands var haldinn í Múlakoti í
Fljótshlíð dagana 27. og 28. ágúst 1950. í sambandi við fund-
inn voru fluttar fyrri daginn messur, sem hér segir:
í Hlíðarendakirkju (séra Hálfdan Helgason og séra Jakob
Jónsson).
í Breiðabólsstaðarkirkju (séra Gísli Brynjólfsson og próf. Ás-
mundur Guðmundsson).
í Stórólfshvolskirkju (séra Sigurbjöm Á. Gíslason og séra
Sveinn Ögmundsson).
í Keldnakirkju (séra Garðar Þorsteinsson og séra Garðar
Svavarsson).
í Oddakirkju (séra Jón Á. Sigurðsson og séra Helgi Sveins-
son).
Formaður deildarinnar, séra Hálfdan prófastur Helgason,
setti fundinn fyrra kvöldið. Því næst flutti séra Eiríkur Brynj-
ólfsson erindi, sem hann nefndi Sumarhugleiðingar. Þá annað-
ist séra Gunnar Jóhannesson kvöldbænir.
Næsta dag hófst fundurinn með morgunbænum, er séra Þor-
steinn Björnsson flutti. Þá gerði formaður grein fyrir störfum
félagsstjómarinnar og niinntist látins félagsbróður, séra Árna
Sigurðssonar fríkirkjuprests. Síðan vom rædd venjuleg aðal-
fundarmál og kosin stjóm. Var hún öll endurkosin, og skipa
hana:
Séra Hálfdan Helgason prófastur, formaður.
Séra Sigurður Pálsson, ritari.
Séra Garðar Svavarsson, féhirðir.
Þá var rætt nokkuð um endurreisn Skálholtsstaðar. Að því
loknu flutti séra Sigurður Einarsson erindi um utanför sína á
þessu sumri, og fjallaði það að nokkra leyti um viðhorf í kirkju-
lífi á Norðurlöndum. Eftir það var gefið fundarhlé til hádegis-
verðar.