Prestafélagsritið - 01.01.1920, Side 149
Prestafélagsritið. Ungkirkjuhreyfingin sænska. 143
stríð fyrir gamla trúarlærdóma, er báru dauðann í sér.
Gamla guðfræðin nægði ungu guðfræðingunum ekki lengur,
en þá skorti andlegt þrek til að skapa sér nýja og trausta
trúarlega lífsskoðun, og druknuðu í efasemdum og spurn-
ingum. Afleiðingin varð svo sú, að kirkjurnar byrjuðu að
tæmast. Helzt höfðu gömlu prestarnir mátt til að halda
fólkinu þar kyrru, en þó fór trúarlífinu líka hnignandi í
sóknum þeirra. En þegar þessi upplausn virtist vera í
almætti sínu, hefst ný kirkjuleg hreyfing meðal stúdent-
anna í Uppsölum.
Uppsalir liafa frá ómunatíð verið höfuðból sænsks trú-
arlífs. f'ar voru blótlundarnir frægu í fornöld, og þegar
kristnin náði loks yfirtökunum í Svíþjóð, kom þar upp
biskupsstóll og síðan erkibiskupssetur. Dómkirkjuna miklu
var byrjað að reisa um 1300, og síðan hefir hún verið
drotning staðarins. Þegar Gustaf Vasa lét reisa kongaborg
sína á hæðinni miklu sunnan við borgina, leit út fyrir
það um skeið, að skugga mundi bera á drotningartign
kirkjunnar. En brátt báru turnspirur hennar yfir konga-
borgina á hæðinni. — Gaman er að sjá gömlu háskóla-
fiygg'nguna í skjóli ldrkjunnar. Ég get ekki hugsað mér
skýrara tákn drottinvalds hennar yfir öllum andlegum
mentum á liðnum öldum. Og þótt háskólinn hafi nú verið
lluttur á hæð nokkru fjær kirkjunni, — sem er svo ein-
kennandi fyrir okkar tíma —, gnæfir hún enn yfir hann
sviphrein og tignarleg. Ekkert er því eðlilegra, en að hún
hali mjög mótað lífsskoðanir stúdentanna þar. Trúarlíf
þeirra heíir líka jafnan verið ríkara og alvörumeira en við
llesta aðra háskóla. Á síðasta fjórðungi 19. aldarinnar fór
því samt yfirleitt hnignandi. En með aldamótunum 1900
fer það að glæðast að nýju, að nokkru leyti vegna áhrifa
utan í frá og að nokkru leyti vegna nýrra kenslukrafta,
er komu að háskólanum. Laust fyrir aldamótin kom
Ameríkumaðurinn John Mott, forseti kristilegu allsherjar-
stúdentahreyfingarinnar, til Uppsala, og sú koma hans
hafði þau áhrif, að »Uppsala kristliga studentsförbundcc